Nemendur hvattir til að taka þátt í PISA með jákvæðu hugarfari

Fréttir|7. mars 2018

Til þess að hvetja skóla, foreldra og nemendur til að nálgast þátttöku í PISA með jákvæðu hugarfari voru þeir Freyr Alexendersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, og Jón Jónsson tónlistarmaður fengnir til að koma fram í myndböndum þar sem þeir tala til nemenda og hvetja þá áfram.

Um fjögur þúsund nemendur munu taka þátt í PISA könnuninni á tímabilinu 12. mars til 13. apríl næstkomandi. PISA-könnunin verður lögð fyrir i öllum grunnskólum landsins og er ætlað að meta færni nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði. 

Við undirbúning fyrirlagnar PISA hefur Menntamálastofnun átt í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, Kennarasamband Íslands, Heimili og skóla, Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og ungmennaráð Menntamálastofnunar. Allir þessir aðilar standa nú saman að kynningu á PISA. 

Til þess að hvetja skóla, foreldra og nemendur til að nálgast þátttöku í PISA með jákvæðu hugarfari voru þeir Freyr Alexendersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, og Jón Jónsson tónlistarmaður fengnir til að koma fram í myndböndum þar sem þeir tala til nemenda og hvetja þá áfram. 

Þá hefur verið settur upp vefur á vegum Menntamálastofnunar, www.pisa.is, þar sem finna má allar frekari upplýsingar um PISA-könnunina. 

Vefur Menntamálastofnunar.

Menntamálastofun á Facebook.

 

 

KAPPHLAUP ÞJÓÐANNA UM MENNTUN

Þá er vert að geta þess að Félag grunnskólakennara, í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, hefur sent eintak af bókinni Kapphlaupi þjóðanna í alla grunnskóla landsins. Í Kapphlaupi þjóðanna er að finna upplýsandi samantekt um PISA sem sett er fram á líflegan og aðgengilegan hátt. Bókin er ætluð kennurum, skólastjórnendum, foreldrum og þeim sem vinna að stefnumótun í menntamálum. Nánar um Kapphlaup þjóðanna um menntun.