Nemendum í íslenskum skólum líður almennt vel

Frammistaða íslenskra nemenda í PISA var undir meðaltali OECD-ríkja í stærðfræðilæsi, lesskilningi og læsi á náttúruvísindi. Nemendum á Íslandi líður hins vegar vel í skólanum og upplifun þeirra af kennurum er jákvæð.
Niðurstöður PI 2022 voru kynntar á alþjóðavísu í morgun. Könnunin mælir hæfni 15 ára nemenda á þremur sviðum; lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Íslenska kynningin fór fram í Eddu – húsi íslenskunnar að viðstöddum ráðherra menntamála, fulltrúum Kennarasambandsins, stjórnvalda og skólasamfélagsins.
Niðurstöður PISA könnunarinnar gefa til kynna að frammistaða íslensku nemendanna, á sviðunum þremur, var undir meðaltali OECD-ríkjanna og undir meðalframmistöðu jafnaldra þeirra á hinum Norðurlöndunum. Árangurinn nú er talsvert síðri en hann var 2018 en heilt yfir sýna niðurstöðurnar verri árangur nemenda í flestum þátttökulöndum PISA.
Um 60% nemenda hérlendis teljast hafa að minnsta kosti grunnhæfni þegar lesskilningur er mældur. Hér lækkaði hlutfallið um 14 prósentustig frá mælingunni 2018 en á bilinu 3 til 8 prósentustig á hinum Norðurlöndunum.
Þá stóðu nemendur í íslenskum skólum sig lakar en jafnaldrar á hinum Norðurlöndunum þegar læsi á náttúruvísindi var metið. Frammistaðan í þessum þætti dalaði mun meir en að meðaltali í ríkjum OECD og hinum Norðurlöndunum. Hlutfall nemenda hérlendis með grunnhæfni í læsi á náttúruvísindi mældist 64% og hafði lækkað um 11 prósentustig frá síðustu mælingu. Þá eru nemendur með afburðahæfni á sviðinu aðeins 2% en 9% á hinum Norðurlöndunum.
Sérstök áhersla var lögð á stærðfræði í PISA 2022. Þetta er sterkasta svið nemendanna hérlendis en því miður var árangurinn lakari en hjá frændum okkar á Norðurlöndum og nemendum í öðrum ríkjum OECD.
Frammistaðan í þessum þætti var rétt yfir meðaltali árið 2018 en dalaði töluvert í mælingunni 2022. Stærðfræðilæsi er þó áfram sterkasta svið nemendanna hér á landi og hlutfall nemenda sem búa yfir grunnfærni á þessu sviði er 66%. Ólíkt nemendum flestra landa stóðu stelpur og strákar sig jafn vel í þessum þætti könnunarinnar.
Jákvæðni í garð kennara
Nemendum á Íslandi líður almennt vel í skólanum, þeir eru jákvæðir í garð kennara sinna og upplifa einelti tiltölulega sjaldan. Þetta kemur fram í svörum við spurningalista þar sem tekið var á líðan nemenda og tengslum þeirra í skólanum. Hér skora íslenskir nemendur mun hærra en jafnaldrar á öðrum Norðurlöndum og í ríkjum OECD gera að jafnaði. Þá voru svörin nú ívið jákvæðari en árið 2018.
Níu af hverjum tíu íslenskum nemendum telja kennara vingjarnlega og að þeir sýni nemendum virðingu. Átta af hverjum tíu telja kennara búa yfir áhuga á vellíðan nemenda. Spurðir út í einelti segjast íslenskir nemendur upplifa það tiltölulega sjaldan miðað við nemendur í öðrum löndum.
Þá kom fram í niðurstöðum PISA að ungmenni hér á landi telja sig búa yfir þrautseigju og streituþoli, þau gefast ekki auðveldlega upp. „Þetta eru ómetanlegir og eftirsóttir eiginleikar,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar, í formála PISA-skýrslunnar.
„Áskorun sem niðurstöður PISA draga fram um lakari árangur barna í læsi kalla á viðbrögð. Það er ekki eitthvað eitt sem mun laga allt, en mikilvægt er að hafa í huga að Ísland er örmálsvæði og því fylgja margar áskoranir. Það mun kosta okkur heilmikið að styðja við íslenskuna en ekkert í líkingu við þann fórnarkostnað sem við verðum fyrir ef við gerum það ekki og missum tökin. Það er ljóst að verkefnið er umfangsmikið og krefur þau okkur sem eru í forsvari fyrir menntamál á íslandi að standa saman að verkefninu,“ segir Þórdís Jóna jafnframt.
Hvað viljum við fá út úr skólakerfinu?
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hélt tölu á fundi þar sem PISA-skýrslan var kynnt í morgun. Þar sagði hann leiðina til árangurs, ekki bara er kemur að PISA heldur í skólakerfinu í heild, vera samráð á breiðum grunni. Vísir að breiðu samtali sé til staðar.
„Að við búum til samtal sem nær inn á skólastofurnar, hvort sem það er á Bakkafirði eða í Breiðholtinu, og þar verðum við að rýna inn í þá styrkleika sem við teljum að við búum yfir en auðvitað taka mark á því að í alþjóðlegum samanburði séum við að fara neðar en við viljum vera. Við viljum svo sannarlega vera hærri í öllum mælikvörðum í alþjóðlegu samhengi en kjarninn verður að vera hvað við viljum fá út úr skólakerfinu okkar. Farsældin liggur í því,“ sagði Magnús.
Þá sagði hann tilefni til að skoða leiðir til að vinna betur með nemendum sem hafa ólíkan félagslegan bakgrunn og vísaði þar til þess að börn með lakari félags- og efnahagslegan bakgrunn koma verr út í mælingum PISA.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ávarpaði líka fundinn og sagði miklar breytingar standa fyrir dyrum í skipulagi menntakerfisins. Hann sagði verkefnið fram undan fela í sér samvinnu stjórnvalda, háskólanna, sveitarfélaganna, kennarasamfélagsins, skólanna og foreldra. Skoða þurfi fyrirhugaðar kerfisbreytingar.
Hvað svo?
„Ljóst er af niðurstöðum PISA 2022 að stjórnvöld, sveitarfélög, stofnanir og samtök þurfa að leggjast á eitt við að skilja ástæður þeirrar neikvæðu þróunar í lesskilningi og læsi sem kemur fram í könnuninni og bregðast við,“ segir í frétt á vef Stjórnarráðsins.
„Greining á niðurstöðunum mun nýtast ríki og sveitarfélögum við innleiðingu nýrrar menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030, nýs matferils til námsmats, nýrrar heildarlöggjafar um skólaþjónustu og nýrrar stofnunar á sviði menntamála, auk farsældarlaga. Aukinn stuðningur við skólaþjónustu, námsgagnagerð, kennara og fagfólk á öllum skólastigum gegna lykilhlutverki í þeirri vinnu.“
Hlekkir á meira efni

„Við viljum svo sannarlega vera hærri í öllum mælikvörðum í alþjóðlegu samhengi en kjarninn verður að vera hvað við viljum fá út úr skólakerfinu okkar. Farsældin liggur í því," segir formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson.