Nauðsynlegt að fylgjast með gosmengun

Fréttir|16. október 2014

Skólastjórnendur í leik- og grunnskólum eru hvattir til að fylgjast með gosmengun frá Holuhrauni. Daglegar spár um dreifingu mengunarinnar og loftgæðin er hægt að nálgast á vef Veðurstofunnar og þá er styrkur mengunarinnar mældur og miðlað á vefsíðunni loftgæði.is. 

Almannavarnir gefa út tilkyningar þegar háir mengunartoppar ganga yfir og nauðsynlegt er að fólk haldi sig innandyra og ef fullorðnir finna fyrir einkennum þá gildir það sama um börnin. 

Á heimasíðum Umhverfisstofnunar og embættis Landlæknis er að finna borða sem er merktur gosmenguninni og þar má nálgast allar almennar upplýsingar. Til dæmis er gagnlegt að skoða töfluna sem sýnir rétt viðbrögð við SO2  mengun. Þessi tafla útlistar viðbrögð eftir styrk mengunar og eftir því hvort um heilbrigt fólk sé að ræða eða fólk sem er viðkvæmt. Taflan er aðgengileg hér. 

Umhverfisstofnun, Landlæknir, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa gefið út þessar leiðbeiningar vegna mengunarinnar.