Náttúrufræðimenntun í brennidepli

Fréttir|26. mars 2015

Málþing um náttúrufræðimenntun verður haldið 17.-18. apríl 2015 í Verzlunarskóla Íslands á vegum Rannsóknarstofu um náttúrufræðimenntun (RAUN) við Menntavísindasvið HÍ í samstarfi við Samtök líffræðikennara, Félag leikskólakennara, Náttúrutorg og NaNO.

Skráning fer fram hér

Málþingið er ætlað öllum sem koma að menntun á öllum sviðum innan náttúru- og raunvísinda. Þar má nefna starfandi kennara á öllum skólastigum, leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, skólastjórnendur, fræðafólk, fulltrúa atvinnulífsins og aðra áhugasama.

Dagskrá má finna á heimasíðu málþingsins

Nánari upplýsingar veita

Birgir U. Ásgeirsson, birgira@hi.is og Svava Pétursdóttir, svavap@hi.is hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands.