Náttúran er besta skólastofan

Fræðslunefnd hefur gefið út fræðslumynd þar sem Sveinlaug Sigurðardóttir segir frá reynslu sinni af útinámi og útikennslu. Sveinlaug hvetur kennara til að fara meira út.
Hvað er útikennsla? Hentar hún öllum? Hvað þarf að hafa í huga þegar haldið er út? Sveinlaug Sigurðardóttir kennari fræðir félagsfólk um útikennslu og ævintýraferðir sem hún hefur þróað í sínum störfum undanfarin ár í nýju FRÆ-i septembermánaðar.
Hún sér um ævintýraferðir í Krikaskóla í Mosfellsbæ en á tuttugu ára kennaraferil sínum hefur hún varið tíu við útikennslu. Hér fyrir neðan er hægt að horfa á fyrirlesturinn í heild.
Ævintýraferðir, öryggi og áhætta
Í erindi sínu fer Sveinlaug yfir hagnýt atriði sem þarf að hafa í huga þegar haldið skal út með nemendahóp, svo sem búnað, val á stað, öryggi og veðráttu. Hún segir ekki svo margar hættur leynast í íslenskri náttúru og mikilvægt sé að leyfa börnunum að upplifa áhættu á eigin forsendum í öruggu umhverfi.

Prófað að klifra upp í tré.
„Fólk hefur oft tilhneigingu til að stoppa börn af en þau verða auðvitað að fá að spreyta sig í náttúrunni og fá að prófa að gera mistök sem eru innan þess aldurs og þroska sem þau ráða við og fá þannig að efla öryggi sitt sjálf með því að læra á aðstæður,“ segir hún.
„Maður verður líka að fá að taka smá áhættu.“
Náttúran kjörið námsumhverfi
Þá er farið yfir hvernig útinám hentar þörfum ólíkra barna, ávinning þess að læra úti og hvernig nýta má náttúruna sem efnivið.
„Náttúran er að mínu mati eitt besta námsumhverfi sem til er. Náttúran er endalaus uppspretta uppgötvana, rannsakana og lærdóms. Prik, vatn, drulla, trjágreinar, gras, blóm, allt það sem á heima í náttúrunni er opinn efniviður og opinn efniviður í eðli sínu ýtir undir sköpun og ímyndunarafl barna.“

Róið á vit ævintýranna. Nemendur nýta efnivið skógarins í frjálsum leik í ævintýraferð.
Námstækifærin leynast víða, líka í vonda veðrinu. „Árstíðirnar gefa okkur auðvitað mismunandi tækifæri. Á haustin er til dæmis kjörið að tala um hvernig trén fella laufin, af hverju þau skipta um lit, eða kanna sveppina og berin. Á vorin er brumið að koma á trén og allt að vakna til lífsins og tilvalið að ræða það. Yfir hásumar er kjörið að vera á tánum úti í náttúrunni og í frostinu á veturna leynast alls konar tækifæri enda mikil eðlisfræði í snjónum og klakanum.“
Allir út
„Ég hvet alla sem langar að fara meira út, vera meira úti, kenna meira úti, til að prófa. Fara bara hægt af stað og ekki ætla sér of mikið í byrjun. Fara með litla hópa til að byrja með, ná vel utan um þau og finna til öryggis og bæta svo ofan á.“
„Ekki láta venjur eða veður stoppa sig heldur ýta sér aðeins út fyrir þægindarammann og bara prófa. Fara á náttúrulegan stað eða leikvöll, bara vera þar og sjá hvað gerist og prófa að gera það svo aftur og aftur og athuga hvort það vakni þessi vellíðan og ró sem ég finn í náttúrunni,“ segir Sveinlaug að lokum.
