Námsvefur sem hvetur til útiveru

Fréttir|15. desember 2025
Reykjavik Petra Schneider
Skólavarðan

Ég hef haft mjög gaman af þessu og það má segja að þetta sé svolítið annars konar námsefni og námsefnisvinna,“ segir Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur, um vefinn Náttúra Reykjavíkur, sem var opnaður fyrr á árinu.

Á hinum efnismikla fræðsluvef er að finna upplýsingar um landslag, þróun byggðar, búsvæði lífvera, náttúruvernd og áhugaverða staði í Reykjavík, svo dæmi séu nefnd. „Ég fékk hugmyndina að gerð þessa vefs fyrir nokkrum árum og ákvað að útfæra hana. Svo opnaði ég vefinn formlega í febrúar 2025,“ segir Sólrún, sem er reyndur námsefnishöfundur. Hún hafði áður gert vef um náttúru Kópavogs og um náttúru Skagafjarðar, sem er hennar annað heimili.

„Að hefjast handa við þetta stóra verkefni og komast auk þess á leiðarenda með það tel ég eitt og sér vera í frásögur færandi,“ segir Sólrún með bros á vör en heilmikil vinna liggur að baki fræðsluvefnum. „Ég er búin að vera að þessu í þónokkur ár. Það er heilmikil pæling í öllu orðalagi og ég hef oft þurft að leita til sérfræðinga til að fræðast og tryggja að allar staðreyndir séu réttar.“

Hugsjón ræður för

„Það er svolítil hugsjón þarna á bak við. Ég var almennt búin að hugsa mikið um grenndarkennslu og að nýta nánasta umhverfi í námi, ég er líka almennt mikið á þeirri skoðun að krakkar þurfi að vera meira úti og þetta efni hvetur til þess.“ Sólrún segir að fólk sé kannski ekki nógu meðvitað um það en náttúra Reykjavíkur sé mjög merkileg og þar sé margt að skoða.

 

Solrun (1)

Sólrún við Blikastaðakró þar sem fallegt er um að litast.

 

„Fáar borgir heimsins geta státað af öðru eins: villtum fuglum á tjörn, jökulsorfnum klöppum, laxveiðiám, ósnortnum fjörum, eyjum á sundum, lundum, gervigígum, steingervingum í setlögum, hrauni og jarðhita svo eitthvað sé nefnt.“ Það er mikilvægt að börn fái tækifæri til að læra um náttúruna í náttúrunni, fái að kynnast sínu nánasta umhverfi og verðmætunum sem í því leynast, segir hún.

Manni fer líka að þykja vænt um það sem maður þekkir vel, svo útinámið er líka liður í að rækta virðingu fyrir náttúrunni og náttúruvernd, að vera ekki sama um hlutina. „Börn fá sterkari sjálfsmynd þegar þau kynnast vel því umhverfi sem þau spretta upp úr. Og um leið og þú þekkir þitt umhverfi þá ertu líka svolítið opnari fyrir því að skoða og læra eitthvað nýtt. Þá verður auðveldara að læra að bera saman og spyrja réttu spurninganna í nýju umhverfi.“

„Lykillinn að náttúruvernd felst í því að við ræktum upp sem flesta einstaklinga sem hafa skilning og áhuga á náttúrunni“

Æskilegt að gefa sem mest lausan taum

Þó að vefurinn sé opinn öllum áhugasömum um umhverfið og náttúruna í Reykjavík er hann fyrst og fremst ætlaður stálpuðum börnum á grunnskólaaldri. Vefurinn er hugsaður þannig að börnin vinni með hann í samstarfi við fullorðna, hvort sem það eru kennarar, leiðbeinendur í frístundastarfi, foreldrar eða aðrir ættingjar og vinir, segir Sólrún. „Ég vildi ekki einangra verkefnið bara við skólana því ég held að það sé svo mikil þörf á að krakkar læri meiri náttúrufræði og séu meira úti í náttúrunni og þess vegna vil ég að þetta nýtist sem víðast.“

Á vefnum er að finna gríðarlegt magn af fræðsluefni þar sem fjallað er til dæmis um ólík vistkerfi, umhverfismál, veður og staði í Reykjavík út frá jarðfræði, líffræði og landafræði. Þar er einnig að finna fjöldann allan af verkefnum og reglulega birtast fréttir á vefnum (sem er í sífelldri þróun).

Víða er orðum og leiðbeiningum beint til hinna fullorðnu og finna má sérstakar leiðbeiningar sem einkum eru ætlaðar kennurum, þar sem efnið er meðal annars tengt við grunnþætti menntunar og Aðalnámskrá grunnskóla. „Verkefni eru mörg opin og það er í höndum hinna fullorðnu að útfæra þau nánar með tilliti til aðstæðna og stöðu barnanna. Æskilegt er að þau fái sem mest lausan tauminn, þá fær sköpunargleðin notið sín og sjálfstæð vinnubrögð og skoðanir þroskast,“ útskýrir Sólrún. „Það sem ræður för lesenda um vefinn getur til dæmis verið umræða í samfélaginu, árstíð, fyrirhuguð vettvangsferð og það sem verið er að vinna með í skólanum.“

Vefurinn lifandi miðill

„Mér fannst henta mjög vel fyrir þetta efni að vera á vef. Það er hægt að gera svo mikið á vef sem er ekki hægt í bók, eins og að krækja í alls konar efni annars staðar frá, birta lifandi myndir og myndbönd og þess háttar,“ segir Sólrún, aðspurð um hvers vegna hún hafi ákveðið að gefa út námsefnið sem vef í staðinn fyrir hefðbundnari námsbókaútgáfu. Svo er það líka þannig að þótt bókin sé góð geturðu kannski ekki alltaf haft hana við höndina, ólíkt veraldarvefnum í dag, sem býður upp á að hægt sé að fletta upp í efninu hvar og hvenær sem er.

„Svo er bókin svolítið endanleg á meðan vefurinn er lifandi og því alltaf hægt að bæta við og bregðast við, til dæmis ábendingum eða því sem er að gerast í náttúrunni hverju sinni – árstíðarskiptum, fréttum af moskítóflugum, veðurfari og þvíumlíku.“

„Svo er það líka áhugavert að fá viðbrögð og finna fyrir því að það eru einhverjir þarna hinu megin við skjáinn minn að nota námsefnið. Það er mikilvægt. Annars væri þetta ekki jafn gaman“, segir Sólrún. „Það er mér í mun að vefurinn nýtist og það hefur verið mjög gefandi að kynna hann, sérstaklega fyrir kennurum sem hafa upp til hópa verið jákvæðir í garð hans og sjá möguleikana til að nýta hann sem námsefni,“ segir Sólrún að lokum.

Allar árstíðir bjóða upp á ólík tækifæri. Sólrún tók þessa fallegu mynd af Rauðhólum.