Námstími – stefna hvítbókar og tillögur um aðgerðir

Fréttir|4. apríl 2016

 

Skólamálaráð KÍ tók í byrjun árs saman umræðuhefti um stefnu og ákvarðanir í menntamálum hér á landi. Bent var á að vissir þættir í heftinu yrðu teknir fyrir sérstaklega og í febrúar sendi Skólamálaráð frá sér umræðuhefti þar sem fjallað var um stefnu hvítbókar í læsismálum.

Nú er vakin sérstök athygli á stefnu hvítbókar er kemur að námstíma, tillögum um aðgerðir og ákvörðunum um framkvæmd. 

Í umræðuheftinu er fjallað um stefnu og áherslur hvítbókar um styttingu náms og námstíma. Raktar eru tillögur verkefnahóps menntamálaráðuneytisins um aðgerðir og í lok hvers hluta setur KÍ fram spurningar til íhugunar og umræðu. 

Skólamálaráð hvetur félagsfólk til að kynna sér umræðuheftið og stuðla að umfjöllun um það. Skólamálaráð fagnar öllum ábendingum og þönkum um efnið. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.

Umræðuhefti Skólamálaráðs KÍ um námstíma. 

Hér má finna Umræðuheftin og bréf sem hafa verið send til trúnaðarmanna og formanna svæða- og félagsdeilda.