Námstefna FSL: Hingað og lengra

Fréttir|4. mars 2015

Félag stjórnenda leikskóla og RannUng efna til námstefnu undir yfirskriftinni Hingað og lengra - framsækin forysta leitar lausna föstudaginn 27. mars nk. Eins og yfirskrift námstefnunnar ber með sér tekur dagskráin mið af þeim hindrunum sem stjórnendur leikskóla standa frammi fyrir og leitað verður lausna til að gera starfsumhverfið þannig að stjórnendur geti sinn leiðtogahlutverki sínu enn betur. Námstefnan fer fram í Gullhömrum Reykjavík og opnar kl. 9:00 en dagskrá hefst kl. 9:30.

Elín María Björnsdóttir leiðtogi hjá FranklinCovey verður aðalfyrirlesari en hún leggur áherslu á „Sjö venjur árangursríkra leiðtoga“. Elín María mun að lokum fyrirlestri sínum efna til örnámskeiðs þar sem fjallað verður um forgangsröðun og tímastjórnun í anda „sjö venja“ til árangurs.

Eftir hádegishlé verður stofnað til menntabúða þar sem kynntar verða nýjar rannsóknir á stjórnun leikskóla.

Lokafyrirlestur námstefnunnar verður í höndum Sindra Sigurjónssonar stjórnunarráðgjafa. Sindri fjallar um hvernig innleiða megi mikilvægar breytingar þrátt fyfir áreitni og  „hvirfilvinda“ sem fylgja daglegu amstri.
 

DAGSKRÁ:

  •  Kl. 09:00  Húsið opnar og tekið á móti gestum með kaffi og morgunsnarli.
  •  Kl. 09:30  Setning. Ingibjörg Kristleifsdóttir formaður FSL setur námstefnuna og námstefnustjóri, sem er engin önnur en Björg Bjarnadóttir, tekur við stjórninni.
  •  Kl. 09:40  Leiðtoginn í mér. Elín María Björnsdóttir heldur fyrirlestur um 7 venjur árangursríkrar stjórnunar og örnámskeið í kjölfarið.
  •  Kl. 12:00  Hádegisverður að hætti Gullhamra, ljúffengur fiskur og eftirréttur.
  •  Kl. 13:00  Menntabúðir fyrri umferð. Félagsmenn sem hafa gert rannsóknir á sviði leikskólastjórnunar leggja inn stuttar kynningar og efna til sprelllifandi samræðna um niðurstöður sínar.* (sjá yfirlit hér að neðan).
  • Kl. 13:45 Skipt á milli menntabúða. 
  • Kl. 14:00 Menntabúðir seinni umferð. 
  • Kl. 14:40 Allir eiga að mæta í aðalsal. 
  •  Kl. 14:45  4DX aðferðafræði til að innleiða hegðunarbreytingar. Sindri Sigurjónsson stjórnunarráðgjafi heldur lokafyrirlesturinn um 4DX aðferðafræði til að innleiða hegðunarbreytingar.
  •  Kl. 15:45  Slit. Arna H. Jónsdóttir forstöðumaður RannUng slítur námstefnunni og gestir ganga til léttra veitinga og samverustundar.
  • Kl. 16:00 Léttar veitingar og samverustund. 

Verð á námstefnuna er 15.000 en námstefnustjóri er Björg Bjarnadóttir.
 

MENNTABÚÐIR:

Þverspýtan: Hvað þarf til að halda grindverkinu uppi?
Ásdís Olga Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri í Sunnufold, Reykjavík. Fyrirlestur á morgunverðarfundi RannUng.

Sá verður að vaka sem á að halda öðrum vakandi: Hlutverk leikskólastjóra eftir efnahagshrun. (2014).
Bergljót Sif Stefánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í Garðaseli, Reykjanesbæ.

Nýir stjórnendur á vinnustað í vanda. (2015).
Egill Óskarsson deildarstjóri / leikskólakennari í Fögrubrekku, Kópavogi.

Sameining leikskóla Reykjavíkurborgar: Upplifun starfsmanna. (2014).
Elín Björk Einarsdóttir.

Flottur mentor, hann getur gert kraftaverk: Stuðningur sveitarfélaga við nýja leikskólastjóra. (2014).
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir leikskólastjóri í Hálsaskógi, Reykjavík.

Er kertið þitt að brenna út skólastjóri: Kulnun grunn- og leikskólastjóra. (2014).
Gerður Ólína Steinþórsdóttir skólastjóri Grunnskólans í Grundarfirði.

Sjónarhorn leikskólastjóra á stjórnunarhlutverk deildarstjóra. (2012).
Jóna Björg Jónsdóttir leikskólastjóri Krakkaborgar í Flóahreppi.

Viðhorf leikskólastjóra til faglegs lærdómssamfélags í fjölmennum leikskólum. (2013).
Kristrún Hafliðadóttir leikskólastjóri í Hulduheimum, Selfossi.

Samspil jákvæðni og starfsánægju: Rannsókn meðal leikskólastjóra. (2014).
Ólafur Brynjar Bjarkason leikskólastjóri í Hagaborg, Reykjavík.

Þáttur leikskólastjóra í þróun faglegs lærdómssamfélags. (2012).
Rannveig Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í Arnarsmára, Kópavogi.

Upplifun aðstoðarleikskólastjóra af starfi sínu. (2011).
Sólveig Þórarinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í Ösp, Reykjavík.