Námstefna Flatar og 30 ára afmæli

Námstefna Flatar verður haldin að Bifröst í Borgarfirði dagana 3. – 4. mars næstkomandi. Dagskrá: 13:00-17:00 á föstudeginum og afmælishátíð um kvöldið. 10:00-14:00 á laugardeginum. Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig. Skráning er til 5. febrúar á slóðinni: https://forms.gle/K217FVE4ZRxZFZsJA
Aðalfyrirlesarar á námstefnunni eru Ann-Sofi Röj-Lindberg frá háskólanum í Åbo í Finnlandi sem fjallar um algebrukennslu og Ósk Dagsdóttir frá Háskóla Íslands sem fjallar um skapandi stærðfræði. Báðir fyrirlestrar spanna stærðfræði á öllum skólastigum.
30 ára afmælishátíð Flatar verður á föstudagskvöldinu.
Í boði verða málstofur/vinnustofur um fjölmörg áhugaverð viðfangsefni og má þar nefna:
Algebrukennsla
Skapandi stærðfræði
Upplýsingatækni, þrívídd og legókubbar
Búnaðarbanki Mixtúru
Stærðfræði og forritun
Fjármálafræðsla
Stærðfræði í samþættingu námsgreina
Hugræn virkjun
Stærðfræði, listir og núvitund
Hlutbundin stærðfræðivinna
Stærðfræði í umhverfinu
Talna– og hugtakaskilningur
Stelpur diffra
Ratleikir
Málstofurnar eru sniðnar að ólíkum aldurshópum þannig að allir fái efni sem hentar þeirra aldursstigi; leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli.
Til að mæta sem flestum bjóðum við upp á nokkra möguleika á skráningu
Námstefna báða daga, afmælishátíð og gisting:
Eins manns herbergi, 32.000 fyrir félagsmenn 37.000 fyrir aðra
Tveggja manna herbergi 25.000 fyrir félagsmenn 30.000 fyrir aðra
Námstefna báða dag án afmælishátíðar og gistingar, dagskrá frá 13:00-17:00, síðdegishressing á föstudegi, dagskrá frá 10:00-14:00, hádegismatur á laugardegi
Félagsmaður í Fleti 12.000
Ekki félagsmaður í Fleti 16.000
Námstefna einungis á laugardegi, dagskrá frá 10:00-14:00, hádegismatur
Félagsmaður í Fleti 7.000
Ekki félagsmaður í Fleti 9.000
Skráning er til 5. febrúar á slóðinni: https://forms.gle/K217FVE4ZRxZFZsJA