Námssamfélag nýliða í kennslu stofnað

Fréttir|13. febrúar 2023

Um samstarfsverkefni er að ræða þar sem markmiðið er að styðja við fólk sem er að stíga fyrstu sporin í kennslustofunni.

Námssamfélag nýliða var stofnað fyrir skemmstu. Markmiðið með hinu nýja námssamfélagi er að styðja við fólk sem er á sínum fyrstu fimm árum í kennslu. Jafnframt að skapa samtal og deila hollráðum. 

Þá er fyrirhugað að bjóða upp á sérsniðna fræðslu  um málefni sem eru nýliðum hugleikin og rjúfa um leið einangrun þeirra. 

Stefnt er að því að fundað verði sex sinnum á ári á Zoom. Hver fundur verður 60 til 90 mínútur og mun innihalda stutta fræðslu og spjall á eftir. 

Nýliðar í kennslu eru hvattir til að ganga í hópinn – en hann er að finna á Facebook undir heitinu Námssamfélag nýliða í kennslu. 

  • Verkefnisstjóri námsamfélagsins er Hjörvar Gunnarsson, kennari í Brekkubæjarskóla. Hann er með netfangið hjorvar@brak.is
  • Verkefnið er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntamiðju, Kennarasambands Íslands og fleiri hagaðila og hefur það að markmiði að styðja við fólk sem er á fyrstu fimm árum sínum í kennslu.

Auglýsing Námssamfélagsins