Námsleyfasjóður hefur opnað fyrir umsóknir
Fréttir|2. september 2015
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2016-2017. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2015.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist:
- hagnýtu læsi og lesskilningi í öllum námsgreinum,
- jafnrétti og lýðræði.
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Námsleyfasjóðs.