Námsleiðir á meistarastigi
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands vekur athygli fjölda námsleiða sem eru í boði næsta vetur. Nú stunda tæplega 500 manns framhaldsnám við deildina og endurspeglar sá hópur mikla breidd, allt frá nýútskrifuðum BA-nemum til fólks með margvíslegan bakgrunn og umfangsmikla starfsreynslu.
Meðal námsleiða sem eru í boði er nám í opinberri stjórnsýslu, alþjóðasamskiptum, kynjafræði, smáríkjafræði og Evrópufræðum. Þá verður boðið upp á fjórar nýjar námsleiðir á meistarastigi næsta haust; blaða- og fréttamennsku, fjölmiðla- og boðskiptafræði, samanburðarstjórnmál og vestnorræn fræði.
Umsóknarfrestur í diplómanám er til 5. júní 2015. Diplómanámið fæst metið inn í meistaranám. Ítarlegur kynningarbæklingur með öllum námsleiðum hefur verið gefinn út og hægt er að sækja um á vefnum.