Námskrárspjall: Tónlistarnám í nútíð og framtíð

FT boðar til tveggja spjallfunda þar sem fyrirhuguð endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla verður rædd. Félagsmenn FT eru hvattir til að taka þátt í fundunum.
Fagráð Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum boðar til rafrænnar fundarraðar undir heitinu Námskrárspjall í tengslum við fyrirhugaða endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla. Námskrár eiga að vera í sífelldri endurskoðun og í þeim ferlum er samtalið í stéttinni ekki síst mikilvægur þáttur. Tveir spjallfundir verða haldnir fyrir páska, þ.e. þriðjudaginn 16. mars kl. 11:30-12:30 og miðvikudaginn 24. mars kl. 11:30-12:30.
Námskrárspjallið verður þematengt og mun hver spjallfundur byrja með kveikju/kveikjum auk þess sem sérstökum gestum mun bregða fyrir í panel með það fyrir sjónum að ná fram ólíkum sjónarhornum á málefnið. Við byrjum vítt og yfirskrift þessara fyrstu funda er „Tónlistarnám í nútíð og framtíð“ og verður lagt út frá þremur kveikjum, sbr. neðangreint.
„Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt í Námskrárspjallinu og vonumst til að þessi vettvangur geti orðið allt í senn, gefandi, fræðandi, skemmtilegur og skapandi!“ segir í bréfi til félagsmanna FT.
Námskrárspjall: þriðjudaginn 16. mars 2021 kl. 11:30 til 12:30
Tónlistarnám í nútíð og framtíð
- Kveikja: Hugmyndafræði þriðju leiðarinnar –Jóhann Ingi Benediktsson, tónlistarkennari við Tónskóla Sigursveins
- Panell: Sérstakir gestir
- Umræður
- Tengill á Teamsfund
Námskrárspjall: miðvikudaginn 24. mars 2021 kl. 11:30 til 12:30
Tónlistarnám í nútíð og framtíð
- Kveikja 1: Skapandi tónlist – fyrir hverja? – Hjörleifur Örn Jónsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri
- Kveikja 2: Poppnámskrá í smíðum – Guðrún Ingimundardóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur
- Panell: Sérstakir gestir
- Umræður
- Tengill á Teamsfund
Fundarstjórn á báðum fundum verður í höndum Sigrúnar Grendal, formanns Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum