Námskeið um sykursýki skólabarna

Fréttir|20. desember 2022

Hjúkrunarfræðingar Barnaspítalans fjalla um sykursýki skólabarna á námskeiði ætlað kennurum mánudaginn 9. janúar á milli klukkan 13 og 16.

Námskeiðið er ætlað kennurum leik- og grunnskóla, starfsfólki skólanna og starfsfólki frístundaheimila. Hjúkrunarfræðingar í sykursýkiteymi barna sjá um námskeiðið sem haldið er mánudaginn 9. janúar á milli klukkan 13 og 16 á Barnaspítala Hringsins. Einnig er streymt frá fundinum. 

Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið og skrá sig. 

Fjallað verður um sykursýki barna, þarfir þeirra á löngum skóladegi og hvernig hátta megi stuðningi við þau og fjölskyldur þeirra. Einnig er farið yfir lágan og háan blóðsykur, einkenni, viðbrögð og áhrif hreyfingar á blóðsykur. Þá verða kynntar aðferðir við að meta blóðsykur og gefa insúlín. Næringarráðgjafi mun fjalla um hollt og gott fæði fyrir börn með sykursýki.

Að lokum verða umræður um blóðsykurstjórnun á skólatíma og tillaga að samstarfi milli forráðamanna barns og starfsfólks skólans verður kynnt.

Leiðbeinendur eru Elísabet Konráðsdóttir, sérfræðingur í barnahjúkrun, Margrét Sigmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sigríður Eysteinsdóttir næringarfræðingur.

Nánari upplýsingar veitir Björk Ellertsdóttir, bjorke@landspitali.is