Námskeið um jökla og jöklarannsóknir

Fréttir|28. ágúst 2019

Félag raungreinakennara stóð fyrir námskeiði um jökla og jöklarannsóknir.

Félag raungreinakennara stóð fyrir námskeiði um jökla og jöklarannsóknir í húsi Endurmenntunar HÍ dagana 12. og 13. ágúst.  Námskeiðið heppnaðist í alla staði mjög vel, var bæði fróðlegt og yfirgripsmikið, enda fimm fræðimenn sem skýrðu frá helstu rannsóknum sínum og annarra á jöklum bæði á íslandi sem og á heimsvísu. 

Helstu umfjöllunarefni voru :

  •  Almennt um jöklafræði , hvar er ís, ísaldir, sjávarstöðubreytingar      
  •  Afkomumælingar á íslenskum jöklum. Niðurstöður og tækjabúnaður til afkomumælinga
  •  Orkubúskapur við yfirborð jökla  - tenging við varmafræði og varmaleiðni
  •  Lögun jökla og þróun, botn og yfirborð. Mælitækni og niðurstöður.
  •  Flæði jökla. Fjarkönnun og mælingar. Aflfræði og líkanareikningar.
  •  Boranir í jökla, saga þeirra og samsætumælinga á ískjörnum
  •  Yfirlit yfir þá þekkingu sem aflað hefur verið með ískjarnamælingum.
  •  Stóra myndin um hvernig eru jöklar í heiminum eru að bregðast við loftslagsbreytingum.

 

Þáttakendur voru 18, hefðu gjarnan mátt vera fleiri.