Námskeið um innleiðingu vinnumats
Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga munu á næstu vikum halda röð tveggja daga námskeiða fyrir skólastjóra, aðstoðarskólastjóra eða deildarstjóra/staðgengla og fræðslustjóra/mannauðsstjóra um nýtt vinnumat grunnskólakennara og innleiðingu þess.
Námskeiðið er ætlað þeim skólastjórnendum sem bera ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd vinnumatsins innan hvers skóla. Markmið námskeiðsins er að efla faglega og kennslufræðilega forystu þeirra. Gert er ráð fyrir að 40-45 þátttakendur sæki hvert námskeið og geta þeir skráð sig á hvað námskeið sem er, óháð búsetu.
Leiðbeinendur verða: Anna Kristín Sigurðardóttir, Börkur Hansen og Edda Kjartansdóttir frá Menntavísindasviði, Sigrún Þorleifsdóttir frá Attentus, auk Svanhildar Maríu Ólafsdóttur og Helga Grímssonar frá Skólastjórafélagi Íslands.
Námskeiðsgjaldið er 25.000 kr. fyrir hvern þátttakanda.
Gert er ráð fyrir að sveitarfélög greiði, hvert og eitt, námskeiðsgjöld og ferðakostnað fyrir sína þátttakendur. Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélögin til að gefa stjórnendum kost á að sækja námskeiðin og hvetja þá til þátttöku í þeim.