Námskeið Menntafléttu hefjast í september

Fréttir|16. ágúst 2023

Menntafléttan eru námskeið fyrir kennara, starfsfólk á vettvangi frítímans og fagfólk sem starfar við menntun. Rauður þráður hennar er að styðja við að námssamfélög blómstri á vinnustöðum þátttakenda.

Námskeiðin fléttast saman við daglegt starf og viðfangsefni þeirra eru fest í sessi með því að fylgja einföldum þróunarhring, fjórum skrefum sem byggja á rannsóknum á farsælli starfsþróun.

Menntafléttan skiptist í tvo hluta; kennd námskeið og opin námskeið. Öll námskeið Menntafléttu eru opin öllum sem starfa í skóla- og frístundastarfi og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Kenndu námskeiðin eru kennd í lotum á ákveðnum tímum í gegnum zoom en námsefni námskeiðanna má nálgast hér á vefsvæði Menntafléttunnar þegar viðkomandi kennari opnar lotuna.

Opnu námskeiðin innihalda allt efni sem þátttakendur þurfa til að taka námskeiðið þar með talið alla kennslu. Þau henta því einstaklega vel fyrir þau sem vilja geta tekið námskeiðin á þeim tíma sem hentar þeim sjálfum best. Þar stjórna þátttakendur sjálfir ferðinni og geta opnað loturnar á þeim tíma sem hentar þeim best og tekið námskeiðið á sínum hraða.

Fyrir spurningar og nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Katrínu Valdísi deildarstjóra starfsþróunar kava@hi.is

Vefur Menntafléttu

 

Starfsþróun tekið fagnandi

Um 1.100 manns skráðu sig til leiks í Menntafléttu fyrir sléttu ári. Þá sagði Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, að ljóst væri að þessari tegund starfsþróunar væri tekið fagnandi. „Skráningin varpar ljósi á þann óþrjótandi áhuga og neista sem kennara búa yfir," sagði Kolbrún jafnframt. 

Menntafléttan er samstarfsverkefni stjórnvalda, háskóla og Kennarasambands Íslands. Verkefnið felur í sér framboð á námskeiðum fyrir kennara og annað fagfólk í skóla- og frístundastarfi.