Námskeið: Loftslag og loftgæði á Íslandi

Fréttir|21. maí 2024

Námskeið fyrir framhaldsskólakennara um loftslag og loftgæði á Íslandi fer fram 6.-7. júní hjá Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, á milli klukkan níu og þrjú.

Markmið námskeiðsins er að gera kennara betur í stakk búna til að fjalla um loftslags- og loftgæðamál í íslensku samhengi í kennslu. Hér er hægt að skrá sig.

Efninu er skipt í sex þætti:

  1. Loftslagsbreytingar og áhrifin á Íslandi. Hver eru vísindin? Elín Björk Jónsdóttir, veðurfræðingur.
  2. Hvaðan kemur losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og hver hefur þróunin verið? Sérfræðingur frá Umhverfisstofnun.
  3. Hvernig gengur? Markmið/skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum og aðgerðaáætlun stjórnvalda. Sigríður Rós Einarsdóttir, sérfræðingur úr umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneyti.
  4. Hver er munurinn á loftslags- og loftgæðamálum? Birgir Ásgeirsson, sérfræðingur frá Umhverfisstofnun.
  5. Lofgæði á Íslandi. Mælingar, staða mála í samanburði við önnur lönd og helstu áskoranir. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur frá Umhverfisstofnun.
  6. Loftslagsmál og loftgæði í stærra samhengi. Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingur frá Umhverfisstofnun.

Námskeiðið er ætlað þeim sem kenna umhverfis-, jarð-, efna-, eðlis- og/eða líffræði í framhaldsskólum. Námskeiðið er framhaldsskólakennurum að kostnaðarlausu vegna styrks frá SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara). Kennurum á öðrum skólastigum gefst einnig tækifæri á að sækja námskeiðið gegn 10.000 kr. gjaldi.

Framhaldsskólakennarar sem sækja námskeiðið og búa í meira en 50 km fjarlægð frá Reykjavík geta sótt um endurgreiðslu á ferða- og/eða gistikostnaði. Sjá reglur SEF hér.

Þátttakendur fá hádegisverð báða námskeiðsdaga í boði Félags raungreinakennara. Námskeiðið er á vegum Félags raungreinakennara í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands.

Takmörkuð sæti í boði. Kennarar eru hvattir til að skrá sig tímanlega til að tryggja sér pláss. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband á raungreinakennarar@gmail.com.