Námskeið í gerð umsókna í Erasmus+

Fréttir|25. febrúar 2014

Landskrifstofa menntahluta Erasmus+ efnir til námskeiða í gerð umsókna um nám og þjálfun í Evrópu. Námskeiðin fara fram á morgun, 26. febrúar, og á fimmtudag, 27. febrúar.

Erasmus+ er ný styrkjaáætlun Evrópusambandsins á sviði menntunar, æskulýðsstarfs og íþrótta og gildir frá 2014 til 2020. Markmið Erasmus+ er að auka gæði og stuðla að samstarfi í menntun og þjálfun innan Evrópu, en 34 Evrópulönd eiga aðild að áætluninni.

Námskeiðin verða haldin í húsnæði Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7, og er yfirskrift námskeiðsins á morgun Starfsmenntun en á fimmtudag er yfirskriftin Leik-, grunn- og framhaldsskólar, tónlistar- og listnámsskólar og fullorðinsfræðslustofnanir. Á námskeiðunum verður farið yfir umsóknarferlið og umsóknareyðublöð skoðuð.

Hægt er að óska eftir aðgengi í gegnum fjarfundabúnað símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni. Námskeiðin standa frá klukkan 14 til 16.

Nánari upplýsingar um áætlunina er að finna á slóðinni erasmusplus.is.