Námskeið fyrir sérkennara

Námskeiðinu er frestað.
Námskeiðinu er frestað. Nánari upplýsingar síðar.
Farið verður yfir ávinning þess að vinna með hæfnimiðað nám í kennslu. Farið verður í aðferðir sem skólar geta notað til að aðlaga hæfnimiðað nám í öllum námsgreinum. Þetta er aðferð sem Holtaskóli hefur verið að vinna að síðastliðin 5 ár og er notast við Mentor skráningarkerfið í þeirri vinnu. Það hefur hjálpað til að birtingarmynd námsmats skólans er eins á öllum stigum, í öllum greinum hvort sem nemandi er með aðlagaða námskrá eða ekki.
Farið verður í og kynnt:
-Hæfnikortin sem við höfum útbúið fyrir allar námsgreinar, bæði aðlagaðar og ekki.
-Sýnishorn af hæfnimiðuðum verkefnum.
-Sýnishorn af hæfnimiðuðum matsrömmum sem eru útbúnir fyrir kennara og/eða
nemendur.
Vinnustofa
Seinni hluti námskeiðsins verður nýttur í að læra hvernig á að nota Mentor við þessa vinnu.
Þá þurfa allir þátttakendur að hafa með sér tölvu og aðgang að Mentor.
Kennari á námskeiðinu er María Sigurðardóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri í Holtaskóla, Reykjanesbæ. María er með B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands og hefur starfað sem grunnskólakennari í 10 ár og sem verkefnastjóri síðastliðin 3 ár í Holtaskóla. Hún stýrði innleiðingu á spjaldtölvuvæðingu skólans í 2 ár og er núna verkefnastjóri og hefur stýrt innleiðingu á nýja námsmatinu ásamt því að vera Mentorsérfræðingur skólans.
Námskeiðið fer fram í Gerðubergi 12. ágúst frá 9-16 og þarf að skrá sig hér.
Verð 3.000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn og 5.000 kr. fyrir aðra