Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á landsbyggðinni

Hvert námskeið er í tvo daga.
Vinnueftirlitið ætlar að standa fyrir námskeiðum fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum sem eru utan höfuðborgarsvæðisins um helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna í skólunum, sjá upplýsingar og dagskrá.
Hvert námskeið er í tvo daga, frá kl. 9:00 til 16:00 og verða námskeiðin haldin sem hér segir:
Janúar
- 17. og 18. janúar, Austurvegi 56, Selfossi.
- 22. og 23. janúar, Samkomuhúsinu Sólvöllum 3, Grundarfirði.
- 24. og 25. janúar, Tjarnarbraut 19, Egilsstöðum.
- 30. og 31. janúar, Sæunnargötu 2a, Borgarnesi.
- 31. janúar og 1. febrúar, Viska Strandvegi 50, Vestmannaeyjum.
Febrúar
- 6. og 7. febrúar, Austurvegi 56, Selfossi.
- 20. og 21. febrúar, Garðarsbraut 26, Húsavík.
- 22. og 23. febrúar, Skipagötu 14, 4. hæð, Akureyri.
- 27. og 28. febrúar, Tjarnarbraut 19, Egilsstöðum.
Mars
- 5. og 6. mars, Skipagötu 14, 4.hæð, Akureyri.
- 12. og 13. mars, Icelandair Hotels, Klettsvegi 1, Vík í Mýrdal.
- 13. og 14. mars, Þverbraut 1, Blönduósi.
- 21. og 22. mars, Krossmóa 4, Keflavík.
Apríl
- 9. og 10. apríl, Víkurbraut 4, (Afl starfsgreinasamband) Höfn.
- 9. og 10. apríl, Aðalstræti 107, Patreksfirði.
- 12. og 13. apríl, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Skólastjórnendur eru beðnir að skrá öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði í skólunum á námskeiðin á heimasíðu Vinnueftirlitsins.
Smellt er á hnappinn „Öll námskeið“ og þá birtist listi yfir námskeið sem eru komin á dagskrá.
Námskeiðsgjald á mann er kr. 20.000. Bent er á að námskeið Vinnueftirlitsins fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði eru á kostnað atvinnurekanda, sbr. 8. og 9. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.