Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði

Hvert námskeið er í tvo daga, frá kl. 9:00 til 16:00.
Vinnueftirlitið ætlar að standa fyrir námskeiðum fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu um helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna í skólunum, sjá upplýsingar og dagskrá.
Hvert námskeið er í tvo daga, frá kl. 9:00 til 16:00 og eru námskeiðin haldin í húsnæði Vinnueftirlitsins, Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík.
Námskeiðin verða haldin sem hér segir:
- 6. og 7. desember 2017 / LOKIÐ
- 15. og 16. janúar 2018
- 30. og 31. janúar 2018
- 21. og 22. febrúar 2018
- 12. og 13. mars 2018
Á námskeiðinu er farið yfir helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna í skólum, svo sem hávaða, lýsingu, inniloft, efnahættur, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti, heilsuvernd á vinnustað, atvinnusjúkdóma, vinnuslys og slysavarnir. Vinnuverndarlögin (46/1980) eru kynnt sem og helstu reglur sem settar eru í samræmi við þau. Auk þess er fjallað um áhættumat en árið 2003 voru sett inn í vinnuverndarlögin ákvæði um að atvinnurekandi beri ábyrgð á að gert sé sérstakt skriflegt áhættumat þar sem áhætta í starfi er metin með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna.
Skólastjórnendur eru beðnir að skrá öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði í skólunum á námskeiðin á heimasíðu Vinnueftirlitsins. Smellt er á hnappinn „Öll námskeið“ og þá birtist listi yfir námskeið sem eru komin á dagskrá.
Námskeiðsgjald á mann er kr. 20.000. Bent er á að námskeið Vinnueftirlitsins fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði eru á kostnað atvinnurekanda, sbr. 8. og 9. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Upplýsingar um námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði í skólum utan höfuðborgarsvæðis eru hér.