Námskeið fyrir leikskólakennara

Fréttir|18. júní 2021

Skráning verður áfram en námskeiðin eru kennd í fjarnámi og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Námskeiðin sem eru í boði:

Málörvun með sögum og söng
Umsjón: Birte Harksen, Rannveig Oddsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir.

Talaðu við mig: Gæðamálörvun í leikskóla
Umsjón: Íris Hrönn Kristinsdóttir, Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Andrea Anna Guðjónsdóttir.

Stærðfræðin í leik barna
Sjá myndband um þetta námskeið.
Umsjón: Jónína Vala Kristinsdóttir, Margrét S. Björnsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir.

Í hnotskurn: Menntafléttan - námssamfélög í skóla- og frístundastarfi er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands. Lesa má um hugmyndafræði Menntafléttunnar á heimasíðu Menntamiðju og í grein sem birtist í Skólaþráðum í lok apríl 2021.

Námskeið Menntafléttunnar ná yfir heilan vetur, þau eru öllum opin óháð búsetu, kennd í fjarnámi og þau eru leikskólum og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skráningu er lokið í eitt leikskólanámskeiðanna, Náttúruvísindi, tækni og málörvun í leikskóla en skráning í önnur námskeið heldur áfram.

 

Ummæli þátttakenda á námskeiði um stærðfræði í leik barna:

„Ég veit nú að stærðfræði með leikskólabörnum er ekki bara + og -, eða sitja á stól og reikna á blaði“.

„Ég horfi allt öðrum augum á starf með börnunum, hlusta betur á þau og gef þeim meiri tíma til þess að útskýra og leita lausna“.

„Fræðandi og hvetjandi námskeið sem ýtir við manni að vera til staðar og fylgjast með því sem gerist í leik barnanna“.