Námsheimsókn í Finnlandi
Fréttir|25. september 2015
Erasmus+ Landskrifstofa menntaáætlunar ESB á Íslandi auglýsir eftir þátttakendum í námsheimsókn í Finnlandi vikuna 7. – 11. desember 2015. Yfirskrift heimsóknarinnar er Management, leadership and cooperation in secondary education (general education and VET).
Í heimsókninni verður lögð áhersla á samstarf milli menntastofnana, almennra framhaldsskóla og verkmenntaskóla. Leita á í reynslubrunn þátttakenda og hvaða leiðir þeir hafa farið í stjórnunarsamstarfi, svæðasamstarfi, gæðastjórnun, alþjóðasamstarfi, við þróun námsgagna, námsgreina o.fl.