Námsferð á Akranes

Föstudaginn 8. september bauð FÍS félagsmönnum í námsferð upp á Akranes. Byrjað var á því að heimsækja Brekkubæjarskóla. Eftir heimsóknina í Brekkubæjarskóla var haldið í nýjan leikskóla Garðasel. Eftir fræðslu í skólunum tók við skemmtidagskrá. Sjá meira
Föstudaginn 8. september bauð FÍS félagsmönnum í námsferð upp á Akranes. Byrjað var á því að heimsækja Brekkubæjarskóla. Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri og Elsa Lára Arnardóttir aðstoðarskólatjóri tóku vel á móti okkur. Arnbjörg hélt erindi þar sem hún sagði frá þróunarverkefni sem hefur verið í gangi í Brekkubæjarskóla um árabil. Í upphafi tók skólinn þátt í Evrópuverkefni þar sem verið var að þróa menntun fyrir alla. Verkefnið tók yfir tvö ár og hefur síðan því lauk haldið áfram að þróast, eflast og dafna. Núna er teymiskennsla í öllum 10 bekkjardeildum skólans. Hver árgangur hefur sitt teymi sem skipað er umsjónarkennurum, fagteymi og stuðningsteymi. Sérkennarar leggjast svo til viðbótar við starfsliðið þar sem hentar. Í þróunarstarfinu hefur verið farið í marga þætti starfsins og allir sem í skólanum starfa hafa sitt að segja um það hvernig skólabragurinn er. Sem dæmi þá væri reglulega fjallað um orðræðu í skólanum og rætt opinskátt um það hvernig hægt er að hafa áhrif á skólabraginn og að allir bera ábyrgð á honum. Hér má sjá kynningu Arnbjargar.
Eftir heimsóknina í Brekkubæjarskóla var haldið í nýjan leikskóla Garðasel. Garðasel er reyndar ekki alveg nýr, því Garðasel hefur starfað í áratugi á öðrum stað, steinsnar frá. Leikskólinn fékk nýtt húsnæði í vor og er að koma sér fyrir enn þá. Byggingin er glæsileg og óhætt að segja að þar sé gott rými fyrir alla, börn og starfsfólk. Stjórnendur leikskólans höfðu tækifæri á að láta skoðanir sínar í ljós strax á hönnunarstigi og tekið var mark á þeirra sýn á leikskólabygginguna. Það kom mjög vel fram hversu ánægt starfsfólk er með vinnuumhverfi sitt í Garðaseli. Vel er mannað af fagfólki og allir sem einn samtaka í því að búa sér gott og nærandi, faglegt umhverfi. Leikskólinn er Heilsueflandi leikskóli og unnið er markvisst eftir heilsustefnunni og Vináttu verkefni Barnaheilla.
Þessa dagana er megin áhersla á aðlögun barna, en óvenju mörg ung börn frá 12 mánaða aldri er að hefja sína skólagöngu í Garðaseli. Garðasel eins og aðrir leikskólar á Akranesi hefur verið í rúmt ár þátttakandi í að innleiða Farsæld í skólastarfi. Það var mjög áhugavert að heyra um reynslu þeirra af innleiðingunni. Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri, Ingunn Sveinsdóttir aðstoðarleikskólatjóri og Ragnheiður Dagný Ragnarsdóttir sérkennslustjóri sögðu okkur frá leikskólanum og innleiðingu farsældarinnar. Hægt er að fræðast um verkefnið Farsæld barna á Akranesi hér á heimasíðu þess. Til hamingju með stórkostlegan leikskóla, þátttakendur voru flestir á því að þeir hafi aldrei komið inn á jafn fallegan leikskóla.
Eftir fræðslu í skólunum tók við skemmtidagskrá. Við heimsóttum Akranesvita sem er staðsettur niður á Breið á Akranesi. Þar tók Hilmar Sigvaldason vel á móti okkur, sagði sögu vitans og hvatti okkur til þess að fara upp á topp vitans og virða fyrir okkur útsýnið. Auðvitað prófuðum við líka hljómburðinn í vitanum, en hann er annálaður og margir tónlistarmenn sem hafa haldið í vitanum tónleika og tekið upp tónlist. Við þökkum Hilmari fyrir móttökuna.
Síðast en ekki síst þá fengum við okkur kvöldverð á veitingastaðnum Nítjánda Akranesi sem staðsettur er í golfskála þeirra Akurnesinga. Við fengum ljúffengan mat og gleymdum okkur í spjalli svo farið var seinna af stað heim en ætlað var.
Takk kærlega fyrir mjög svo áhugaverðan og skemmtilegan dag.
Við tókum fullt af myndum sem sjá má hér.
