Námsefni verði ókeypis og framboð aukið

Löngu tímabært er að ráðast í aðgerðir til að auka framboð á vönduðum og fjölbreyttum náms- og kennslugögnum.
Löngu tímabært er að ráðast í aðgerðir til að auka framboð á vönduðum og fjölbreyttum náms- og kennslugögnum. Náms- og kennslugögn eiga að vera nemendum að kostnaðarlausu frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla og í tónlistarskólum til að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag og aðstæðum.
þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var á málþingi skólamálaráðs KÍ sem fram fór í húskynnum Endurmenntunar HÍ í gær. Yfirskrift málþingsins var: Skóli framtíðar – námsgögn fortíðar? Eru náms- og kennslugögn í takt við þarfir nemenda og kennara?
Í ályktun fundarins er lagt fast að mennta- og menningarmálaráðherra að hafa forgöngu um aðgerðir til að auka framboð á vönduðu námsefni, og að því sé unnið í samstarfi við Alþingi, Menntamálastofnun, sveitarfélögin, kennarasamtökin og faggreinafélög kennara.
Meðal aðgerða sem fundurinn leggur til er að aðgengi nemenda að tölvum og tæknibúnaði verði bætt, skattur á bækur verði afnuminn og að gerð verði úttekt á þörfum nemenda og kennara fyrir vönduð náms- og kennslugögn.
Ályktun fundarins hjóðar svo í heild:
Ályktun málþings skólamálaráðs Kennarasambands Íslands um náms- og kennslugögn haldið 5. september 2017 í Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, Reykjavík.
Skóli framtíðar – námsgögn fortíðar? Eru náms- og kennslugögn í takt við þarfir nemenda og kennara?
Fundurinn hefur kynnt sér stöðuna á náms- og kennslugögnum í skólakerfinu út frá framboði, aðgengi, gæðum, fjölbreytileika og kostnaði.
Fundurinn telur löngu tímabært að ráðist verði í aðgerðir til að auka framboð á vönduðum og fjölbreyttum náms- og kennslugögnum sem haldast í hendur við markmið um menntun við hæfi og styðja við starf kennara og þróun náms og kennslu.
Fundurinn leggur fast að mennta- og menningarmálaráðherra að hafa forgöngu um þetta í samstarfi við Alþingi, Menntamálastofnun, sveitarfélög, kennarasamtökin og faggreinafélög kennara.
Fundurinn undirstrikar eftirfarandi aðgerðir í þessu skyni:
- Að náms- og kennslugögn verði nemendum að kostnaðarlausu frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla og í tónlistarskólum til að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag og aðstæðum.
- Að virkjuð verði heimild í lögum um Menntamálastofnun um gerð og miðlun náms- og kennslugagna fyrir öll skólastig.
- Að bæta aðgengi nemenda að tölvum og tæknibúnaði í skólunum.
- Að skattur á bækur verði afnuminn.
- Að gerð verði úttekt á stöðu náms- og kennslugagna í skólakerfinu og á þörfum nemenda, kennara og skóla fyrir vönduð og fjölbreytt náms- og kennslugögn.
- Að úttekt verði gerð á Þróunarsjóði námsgagna og Námsgagnasjóði grunnskóla með það að markmiði að sjóðirnir geti sem best sinnt þörfum nemenda, kennara og skóla á öllum skólastigum fyrir vönduð og fjölbreytt náms- og kennslugögn.
- Að kannaðar verði fyrirmyndir hjá öðrum löndum sem standa framarlega á sviði náms- og kennslugagnagerðar fyrir nemendur og kennara út frá framboði, aðgengi, gæðum, fjölbreytileika og gjaldfrelsi nemenda og foreldra.
- Að unnið verði að úrbótum á grundvelli ofangreindra úttekta og kannana og stefna sett um útgáfu náms- og kennslugagna fyrir skólakerfið og aðgerðaáætlun með skilgreindum fjárframlögum með áherslu á framboð, aðgengi, gæði, fjölbreytileika og gjaldfrelsi nemenda og foreldra.
- Að framboð á starfsþróun fyrir kennara verði aukið til að efla þróun náms og kennslu og aðstæður bættar til að sinna starfsþróun á starfstíma skóla og utan.
Menntamálastofnun gegnir mjög mikilvægu hlutverki í gerð og miðlun náms- og kennslugagna sem alls ekki má rýra. Ríkið þarf að styðja vel við starfsemi stofnunarinnar svo hún geti sem best sinnt þörfum allra skólastiga fyrir vandað og fjölbreytt efni.
Myndbandsupptaka af málþinginu.