Náms- og starfsráðgjöf gegnir lykilhlutverki

Dagur náms- og starfsráðgjafar er í dag. Markmið með deginum er meðal annars að minna á mikilvægi þess að náms- og starfsráðgjöf sé í boði fyrir alla – þeim til farsældar.
„Þegar við horfum til framtíðar er ljóst að náms- og starfsráðgjöf gegnir lykilhlutverki í að efla hæfni einstaklinga til að takast á við breytingar, nýta tækifæri og finna farveg sem hentar hverjum og einum. Það er þjónusta sem á ekki aðeins erindi við stúdenta heldur alla sem vilja vaxa, læra og þróast í takt við lífið sjálft," skrifa náms- og starfsráðgjafarnir Jónína Kárdal og Svandís Sturludóttir í grein sem birtist á Vísi fyrr í dag.
Tilefni greinarinnar er dagur náms- og starfsráðgjafar sem haldinn er hátíðlegur í dag, nítjánda árið í röð, eða síðan árið 2006. Félag náms- og starfsráðgjafa á sér þó mun lengri sögu en félagið var stofnað árið 1981. Við stofnun félagsins voru sjö félagsmenn en í dag eru þeir ríflega 300. Um 80 náms- og starfsráðgjafar vinna í framhaldsskólum landsins.
Meginmarkmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi. Ráðgjöfinni er ætlað að auðvelda fólki, á hvaða aldri sem er og við hvaða aðstæður sem er, að átta sig á styrkleikum sínum, færni og áhuga til að eiga hægara með að ákveða stefnu í námi og starfi.
„Náms- og starfsráðgjöf er lögbundin þjónusta og mikilvægt að tryggja aðgengi að henni, hvar sem maður er staddur á sínum náms- og starfsferli. Að mínu mati er þetta rökrétt því eitt af meginverkefnum einstaklings í lífinu er að taka ákvarðanir um nám og störf og finna sína leið,“ sagði Jónína Kardal, þáverandi formaður félagsins, í viðtali í Fréttablaðinu í október 2021 en þá fagnaði félagið 40 ára afmæli.
Góðar kveðjur til ráðgjafanna
Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar á vef Stjórnarráðsins í dag. Þar segir að náms- og starfsráðgjöf sé lykilþáttur í menntakerfinu, bæði er varðar farsæld einstaklinga og samfélagsins.
„Náms- og starfsráðgjöf er liður í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Í 2. aðgerðaráætlun menntastefnunnar er lögð áhersla á að byggja upp og tryggja aðgang að markvissri og samfelldri náms- og starfsráðgjöf, óháð aldri, búsetu eða félagslegri stöðu. Markmiðið er að tryggja jöfn tækifæri til menntunar alla ævi og til þátttöku á vinnumarkaði," segir í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Þá vill mennta- og barnamálaráðuneytið þakka náms- og starfsráðgjöfum, um land allt, fyrir þeirra mikilvæga framlag. „Þeir eru fagfólk sem styður við einstaklinga á tímamótum, í vexti og í mótun framtíðar," segir í fyrrnefndri frétt.
Kennarasambandið óskar náms- og starfsráðgjöfum til hamingju með daginn!
Tengt efni