Nám í tölvuskóla – og mikilvægi góðs námsefnis
„Það er vandmeðfarið að kenna og vinna með unglingum sem telja það sitt fyrsta verk þegar í skólastofuna er komið að opna tölvuna sína og fara á Facebook," skrifar Garðar Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum í Kópavogi, í nýjum vikupósti sem birtur er á vef Félags framhaldsskólakennara.
Garðar fjallar í vikupóstinum um mikilvægi góðs námsefnis, jafnt hefðbundins námsefnis í bókum eða í rafrænu formi. Hann segir ekki um auðugan garð að gresja fyrir framhaldsskóla þegar viðskiptagreinar eru annars vegar. Garðar skorar á þá sem „véla um breytta uppbyggingu framhaldsskólans, breytta námskrá, styttra nám eða lengra nám og vinnumat námsáfanga að hafa í huga að kennsluefni og þekkingin sem koma á til nemenda verður ekki bara hirt upp af netinu, það þarf að huga að útfærslunni alla leið.“