Nálgun Reggio Emilia
Fréttir|25. febrúar 2014
Ráðstefna sem ber yfirskriftina Nálgun Reggio Emilia í menntun barna verður haldin dagana 7. til 8. mars næstkomandi. Nálgun Reggio Emilia felur meðal annars í sér að menntun byggi á gagnkvæmri virðingu fyrir margbreytileika barna, getu og þekkingu hvers einstaklings og sé á þann hátt veraldleg og opin fyrir gagnvirkum samskiptum.
Ráðstefnan fer fram í Bratta, Menntavísindasviði við Háteigsveg. Ráðstefnugjald er 150 evrur eða um 23.000 krónur. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér og einnig má lesa um nálgun Reggio Emilia hér.