Nafni FT breytt á aðalfundi
Nafni Félags tónlistarskólakennara hefur verið breytt. Nýtt heiti félagsins er Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Nafnbreytingin var samþykkt á aðalfundi félagsins 21. febrúar síðastliðinn.
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, segir að skammstöfun félagsins, FT, verði áfram við lýði. Hún segir að fyrir aðalfundi hafi legið tillaga um að nafni félagsins yrði breytt þannig að það fæli í sér heiti beggja hópa félagsmanna; það er kennara og stjórnenda og væri þannig betur lýsandi fyrir félagið.
„Ég tel að þessi nafnbreyting hafi verið tímabær og er mjög sátt við nýja nafnið," segir Sigrún.
Á aðalfundinum var kosið í stjórn og varastjórn FT. Sigrún Grendal gaf ein kost á sér til formanns og var sjálfkjörin. Aðrir sem skipa stjórn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum eru Ingunn Ósk Sturludóttir, Þórarinn Stefánsson, Dagrún Hjartardóttir og Sigríður Aðalsteinsdóttir. Varastjórn er skipuð Árna Sigurbjarnarsyni, Vilberg Viggóssyni og Örlygi Benediktssyni.
Þá voru kosnir þrír fulltrúar sem mynda samningaefnd FT ásamt stjórn. Þeir eru Guðlaugur Viktorsson, Kristín Kristjánsdóttir og Guðbjörg Sigurjónsdóttir.