Næstu samningafundir boðaðir í ágúst
Fréttir|3. júlí 2014
Viðræðuhlé hefur verið gert í samningaviðræðum Félags stjórnenda leikskóla við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hins vegar.
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir félaganna tveggja og Sambands íslenskra sveitarfélaga til fundar 8. ágúst næstkomandi.
Félag tónlistarskólakennara vísaði kjaradeilu sinni til sáttasemjara 12. júní síðastliðinn og Félag stjórnenda leikskóla vísaði sínum kjaraviðræðum til sáttasemjara 1. júlí síðastliðinn.