Næsta skref heldur áfram starfsemi

Næsta skref er nafn vefsíðu þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um námsframboð á framhaldsskóla-, framhaldsfræðslu- og háskólastigi.
Vefurinn Næsta skref heldur áfram göngu sinni en honum var lokað um stundarsakir vegna fjárskorts. Nýr samningur um rekstur vefsins var undirritaður um síðustu mánaðamót en þar komu saman Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Tilkynnt var um lokun vefsins í mars vegna skorts á fjármagni. Viðræður um áframhaldandi fjármögnun stóðu yfir í vor milli stjórnvalda og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem rekið hefur vefinn undanfarin ár.
„Tilgangur vefsins er að tryggja að á einum stað séu greinargóðar og aðgengilegar upplýsingar um námsframboð á framhaldsskóla-, framhaldsfræðslu- og háskólastigi, störf á íslenskum vinnumarkaði, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimatsleiðir. Auk þess styrkir vefurinn almenna fræðslu í menntastofnunum um nám og störf. Fjöldi notenda hefur vaxið úr um 20.000 á ári í tæplega 70.000 sem kallar á aukna þjónustu," segir í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Fjármögnun vefsins verður í höndum mennta- og barnamálaráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en rekstur og þróun verður í höndum Menntamálastofnunar.

Samningurinn undirritaður í lok júní 2023.