Myndband um mikilvægi raddarinnar í kennslu
Fréttir|11. janúar 2021

Ný myndbönd frá skólamálanefnd FG sem styðja og efla kennara í starfi.
Skólamálanefnd Félags grunnskólakennara hefur hleypt af stokkunum verkefni sem snýst um að styðja og efla kennara í starfi. Hafin er framleiðsla á myndböndum sem verða birt á vef Kennarasambandsins og er markmiðið að í hverjum mánuði birtist nýtt myndband. Viðfangsefnin eru valin með það að leiðarljósi að styðja við skólaþróun á fjölbreyttan hátt, bæta líðan kennara, styrkja starfsþróun og þar með efla gæði skólastarfs.
Í fyrsta myndbandinu fjallar Þórey Sigþórsdóttir leikkona um mikilvægi raddarinnar og raddbeitingar.