Mundu að hnerra í regnbogann

Fréttir|23. september 2021

Út er komin bók þar sem er að finna frásagnir kennara, nemenda, stjórnenda og starfsfólks skóla og frístundaheimili af því hvernig gekk að láta hlutina ganga upp í heimsfaraldri. Titill bókarinnar er Mundu að hnerra í regnbogann og mun bein tilvitnun í leikskólabarn.

Skólastarf á tímum heimsfaraldurs COVID-19 er efniviður nýrrar bókar, Mundu að hnerra í regnbogann, sem kom út í dag. Í bókinni er fjallað um fjölþætt áhrif faraldursins á skóla- og frístundastarf hérlendis og samanstendur hún af persónulegum frásögnum skólafólks; kennara, nemenda, stjórnenda og starfsfólks á öllum skólastigum. 

„Meginmarkmið verkefnisins var að safna saman þessum forvitnilegu frásögnum til að draga megi lærdóm af reynslu fólks og nýta til framtíðar, íslensku menntakerfi til gagns og heilla,“ segir í frétt á vef Stjórnarráðsins en það er mennta- og menningarmálaráðuneytið sem gefur bókina út. 

„Skólafólk á Íslandi hefur sannarlega unnið þrekvirki við að halda uppi námi og kennslu við mjög sérstakar aðstæður á undanförnum misserum – það sést vel í frásögnum þessarar merkilegu bókar. Hana er bæði fróðlegt og skemmtilegt að lesa og mig langar að þakka þeim fjölmörgu sem ýmist sendu inn sögur sínar eða tóku þátt í gerð hennar með öðrum hætti. Bókin ber vitni um seiglu og úrræðagæði sem fyllir mig bæði bjartsýni og stolti yfir skólastarfi hér á landi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, á kynningarfundi um bókina í morgun. 

Frásagnirnar lýsa reynslu fólks á öllum aldri af skólastarfi í hringiðu heimsfaraldurs, en höfundar greina hér frá upplifun sinni, áskorunum, tilfinningum og skoðunum. Í bókinni er einnig fjallað stuttlega um ýmsar rannsóknir íslenskra fræðimanna um áhrif COVID-19 á skóla- og frístundastarf sem farnar eru af stað.

Ritstjóri bókarinnar er Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun á næstunni senda öllum fræðsluskrifstofum, leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, tónlistarskólum, framhaldsfræðsluaðilum, frístundaheimilum og háskólum eintök af bókinni.