Móttaka KÍ lokuð vegna viðgerða

Fréttir|21. ágúst 2023

Félagsmenn geta haft samband símleiðis, sent inn fyrirspurn af vefnum og eða sent töluvpóst.

Skrifstofa Kennarasambandsins er lokuð um þessar mundir að þvi leyti að ekki er hægt að taka á móti félagsmönnum í Borgartúni. 

Unnið er að viðgerðum á gólfi húsnæðisins og ekki liggur fyrir hvenær verkinu lýkur. Upplýst verður hér á vefnum um leið og skrifstofan verður opin með hefðbundnum hætti á nýjan leik. 

Hefðbundin þjónusta við félagsmenn er eftir sem áður veitt. Hægt er að hafa samband í síma 595 1111 á milli 10 og 15 virka daga. Þá er hægt að ýta á umslagið hér á síðunni og senda inn fyrirspurn. Tölvupósti er jafnframt svarað.