Mótmæla uppsögnum ræstingafólks

Fréttir|13. maí 2015

Starfsmenn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) mótmæla harðlega uppsögnum sjö starfsmanna sem vinna við ræstingar í skólanum. Skorað er á skólameistara að draga uppsagnirnar til baka. 

Í ályktun sem samþykkt var á fundi starfsmanna FVA 12. maí 2015 segir að ekki verið sýnt fram á að nokkuð sparist með breyttu fyrirkomulai við ræstingar. Fráleitt sé að gera starfsfólk í ræstingum ábyrgt fyrir halla á rekstri stofunarinnar. 

Ályktun starfsmanna FVA í heild: 

Fundur starfsmanna Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi haldinn þriðjudaginn 12. maí 2015 mótmælir harðlega uppsögnum 7 starfsmanna sem starfa við ræstingar í skólanum og skorar á skólameistara að draga uppsagnirnar til baka.

Ekki hefur verið sýnt fram á að nokkuð sparist með breyttu fyrirkomulagi við ræstingar. Þvert á móti má víða finna dæmi um hið gagnstæða þegar öll kurl eru komin til grafar.

Fráleitt er að gera starfsfólk í ræstingum ábyrgt fyrir þeim halla sem orðið hefur á rekstri stofnunarinnar á undanförnum árum. Hér er byrjað á öfugum enda. Skólameistarar eiga að snúa sér að ríkisvaldinu og krefjast þess að það veiti skólunum fé í samræmi við fjárþörf. Mikil er ábyrgð þeirra sem um véla. Í FVA er ekki bruðlað með neitt, þar er engin óráðsía. Rekstarhalli skólans er fyrst og fremst til orðinn vegna þess að skólinn fær ekki nóg fjármagn til að greiða umsamin laun og borga húsaleigu.

Talsvert var skorið niður í ræstingum eftir hrun. Ekki var ráðið í stöður sem losnuðu, sem þýddi auknar byrðar á þá sem eftir voru. Nóg er komið af slíku.