Mótmæla niðurskurði til tónlistarskóla

Foreldrafélag Tónmenntaskóla Reykjavíkur mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði borgaryfirvalda á fjárframlögum til tónlistarmenntunar. Formaður FT segir áformin ganga þvert gegn tónlistarstefnu þjóðarinnar.
Borgaryfirvöld tilkynntu nýverið að til stæði að lækka mánaðarlegt nemendastundaframlag til tónlistarskóla borgarinnar um 7.07 prósent. Í yfirlýsingu frá Foreldrafélagi Tónmenntaskóla Reykjavíkur, sem stofnaði undirskriftalista í mótmælaskyni, segir að áformin auki á ójöfnuð og takmarki aðgengi barna og ungmenna að tónlistarnámi.
„Þessi þróun er uggvænleg, mun einungis leiða til skertar þjónustu og/eða hærri skólagjalda, og gengur þvert á þau gildi sem borgin segist vilja standa fyrir: menntun, listir og jöfn tækifæri fyrir börn og ungmenni,“ segir í yfirlýsingu foreldrafélagsins.
Foreldrafélagið skorar á fulltrúa í borgarstjórn að endurskoða ákvörðunina og standa vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna til framtíðar. Lesa má yfirlýsingu félagsins í heild hér fyrir neðan.
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, segir málið grafalvarlegt.
„Að Reykjavíkurborg hyggist enn eina ferðina beita beittum niðurskurðarhnífnum á tónlistarnám í borginni er óásættanlegt. Slík áform ganga þvert gegn tónlistarstefnu þjóðarinnar, þar sem segir að það sé hlutverk stjórnvalda að tryggja inngildingu og aðgengi almennings að tónlist og tónlistarmenntun. Hér þarf tónlistarborgin Reykjavík að standa undir nafni.
Starfs- og rekstrarumhverfi tónlistarskóla í borginni hefur verið óviðunandi um langt skeið, þar sem skólar hafa þurft að verja miklum tíma og dýrmætri orku í að verja starfsemi skólanna, og það er kominn tími til að snúa við blaðinu. Við lítum stöðuna alvarlegum augum og munum senda frá okkur ályktun um málið eftir helgi," segir Sigrún Grendal.
Margir uggandi yfir áformum borgarinnar
Fleiri hafa lýst yfir áhyggjum vegna áforma borgarinnar, svo sem Samtök tónlistarskóla í Reykjavík (STÍR). Í drögum að ályktun frá samtökunum, sem mbl.is hefur undir höndum, segir að með niðurskurðinum lengist biðlistar, þjónusta skerðist og störfum fækkar. Óhjákvæmilega muni skólagjöld hækka og með færri plássum verði tónlistarnám fyrir hina „útvöldu og efnameiri“.
Niðurskurður grefur undan framtíð tónlistarnáms og menningarstarfs í landinu
Edda Austmann, stjórnarmaður STÍR, segir í samtali við mbl.is, að lækkunin geti þýtt að fækka þurfi stöðugildum um hálft, upp í eitt og hálft, stöðugildi á hvern skóla. Þá bætist skerðingin við 26,7% raunsamdrátt sem þegar hafi orðið á fjárframlögum borgarinnar til tónlistarskóla á árunum 2012-2025.
Til dæmis hafi kennslustundafjölda tónlistarskóla í Reykjavík þegar fækkað um 13 prósent milli skólaáranna 2012/13 og 2025/26, þrátt fyrir að nemendum á grunnskólaaldri hafi fjölgað í borginni um rúm 10 prósent á sama tímabili. Niðurskurðurinn leiði svo aftur til fækkunar kennslustundafjölda í haust.
Stjórn Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) lýsir einnig áhyggjum af þróuninni og segir niðurskurð í tónlistarnámi þegar mikinn. Niðurskurður þýði að nemum í tónlistarnámi fækki. Það geti leitt til vítahrings þar sem skólarnir fái svo lægri styrki eftir því sem nemendum fækkar, segir Margrét Hrafnsdóttir, formaður FÍT, í samtali við Morgunblaðið.
Heft aðgengi að tónlistarnámi
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, deilir áhyggjum af þróuninni og bendir á að nemendum tónlistarskóla landsins fækkaði um 13 prósent frá 2009 til 2024 á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 20 prósent. Hlutfallsleg fækkun nemenda í tónlistarskólum landsins á tímabilinu er þannig 28 prósent þegar horft er til mannfjöldaþróunar.
Í samtali um málefni tónlistarskólans, þar sem Sigrún, ásamt fleiri fulltrúum tónlistarskólans, ræddi við Gunnar Smára Egilsson á Samstöðinni um stöðuna, kom fram að fækkunin þýði ekki að minni aðsókn eða eftirspurn sé eftir tónlistarnámi - enda fækki ekki á biðlistum - heldur komist einfaldlega færri að en vilji. Þróunin skýrist til að mynda af því að dregið hafi úr fjárframlögum til skólanna, sem sé sérstaklega slæmt í þeim sveitarfélögum þar sem íbúafjölgun er hvað mest, eins og í Reykjavík. Þetta hafi afleiðingar.

Veruleikinn er þannig að tónlistarnám er ekki aðgengilegt öllum óháð efnahag, segir Sigrún Grendal.
Yfirlýsing Foreldrafélagsins í heild
„Við undirrituð, aðstandendur barna og ungmenna í tónlistarskólum Reykjavíkur, mótmælum harðlega niðurskurði borgaryfirvalda á framlögum til tónlistarmenntunar sem nýlega tilkynntu um rúmlega 7% lækkun á mánaðarlegu nemendastundaframlagi til tónlistarskóla í Reykjavík.
Við lýsum yfir miklum áhyggjum af þessum niðurskurði, og teljum hann gera tónlistarnám óaðgengilegt fyrir fjölda barna og auka ójöfnuð meðal barna og ungmenna.
Í hruninu 2008 var framlag til tónlistarskóla skorið niður um 20% og því lofað að þau framlög myndu koma til baka. Það hefur ekki gerst og nú á að skerða enn frekar. Þessi þróun er uggvænleg, mun einungis leiða til skertar þjónustu og/eða hærri skólagjalda, og gengur þvert á þau gildi sem borgin segist vilja standa fyrir: menntun, listir og jöfn tækifæri fyrir börn og ungmenni.
Við skorum á fulltrúa okkar í borgarstjórn Reykjavíkur, tónlistarborgar UNESCO, að endurskoða þessa ákvörðun og standa vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna til framtíðar."
