Molinn á miðvikudögum – kynning á skólastarfi

Fréttir|10. júlí 2023

Nýtt þróunarverkefni felur í sér að haldnar verða stuttar örkynningar, undir nafni Molans, um málefni skóla og frístundar á komandi hausti.

Menntavísindasvið HÍ, í samstarfi við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar (meðal annars Nýsköpunarmiðju menntamála og Mixtúru) vinna nú að þróunarverkefni sem þau kalla Molann. 

Molinn felur í sér að einstaklingar, samtök og stofnanir geta kynnt starfsemi sína og hvernig nýta má hana í skóla- og frístundastarfi. Fyrst um sinn verður kastljósinu beint að skólastarfi í Reykjavík. 

Molinn í hnotskurn

  • Hagnýtar örkynningar á fjölbreyttum málefnum sem nýtast starfsfólki í skóla- og frístundastarfi í landinu
  • Kynningar í Molanum eru stutt eða að hámarki 15 mínútur með fyrirspurnatíma, ef þörf er á.  
  • Molinn fer fram á Zoom. Allt efni verður tekið upp og verður hægt að nálgast það út skólaárið 2024. 
  • Ekki er greitt fyrir innslögin.
  • Molinn á að vera hagnýtur fyrir fólk á vettvangi og því er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga: Hvað er þetta? Fyrir hverja? Hvernig gengur það? Hvernig nýtist það? Hvernig er það að virka? 

Stefnt er að því að senda Molann út vikulega á komandi hausti, á miðvikudögum klukkan þrjú. 

Viltu taka þátt?

Áhugasömum er bent á að fylla út spurningalista þar sem greint er frá helstu atriðum í erindi. 

„Ef erindið þitt getur tengst ákveðnum degi/viðburði, til dæmis Degi íslenskrar tungu, Degi gegn einelti o.s.frv. má endilega taka það fram. Reynt verður eftir fremsta megni að koma til móts við óskir um tímasetningu," segir í tilkynningu Menntavísindasviðs. 

Nánari upplýsingar veitir Hildur Arna Hakansson í gegnum netfangið hildurarna@hi.is