Mögnuð stemning í Gleðigöngunni

Fjölmennur hópur gekk undir merkjum heildarsamtaka launafólks í Gleðigöngunni í gær. Mikil gleði á alla kanta, litadýrð og fjör.
Kennarsambandið, ASÍ, BSRB og BHM gengu í fyrsta sinn fylktu liði í Gleðigöngu Hinsegin dag, sem fór fram í gær. Yfirskrift hópsins var Samstaða í öllum regnbogans litum.
Fjölmennt var í hópnum sem gekk alla leið undir taktfastri tónlist Lúðrasveitar verkalýðsins. Skilaboðin voru skýr um að standa með réttindabaráttu hinsegin fólks.
Kennarasambandið og aðilar vinnumarkaðarins skrifuðu á föstudag undir viljayfirlýsingu um samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar. Aðilar skuldbinda sig þannig til að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði.
Kennarasambandið þakkar þeim félögum sem tóku þátt í göngunni.