Móðurmálskennarar álykta um PISA

Fréttir|9. mars 2017

Stjórn Samtaka móðurmálskennara hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:

Stjórn Samtaka móðurmálskennara hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: 

„Samtök móðurmálskennara styðja að fullu málflutning Eiríks Rögnvaldssonar um Písa-próf OECD sem Menntamálastofnun hefur umsjón með. Málfar prófsins verður að standast kröfur um vandað nútímamál og því ætti að kalla til vanan yfirlesara eftir að löggiltur skjalaþýðandi hefur lokið störfum svo prófið verði öllum til sóma og nemendum boðlegt.

Ljóst er að lesskilningi íslenskra barna og ungmenna hefur hrakað og orðaforði verður æ fátækari, þess vegna verður að róa öllum árum að því að auka lestur íslenskra skólabarna bæði á skólatíma og heima og hafa lesefnið fjölbreytt.

Við búum á smáu málsvæði þar sem tungumálið er menningararfleifð okkar. Íslenskri tungu verður að sýna þá virðingu sem henni ber ekki hvað síst nú þegar hún á undir högg að sækja í hraðri tækniþróun nútímans.“

Sigrún Birna Björnsdóttir, formaður Samtaka móðurmálskennara