Mjöll sækist eftir endurkjöri til formanns FG

Fréttir|20. janúar 2026

Mjöll Matthíasdóttir tilkynnti kjörnefnd FG um framboðið síðastliðinn laugardag.

Mjöll Matthíasdóttir hefur tilkynnt kjörnefnd Félags grunnskólakennara (FG) að hún sækist eftir endurkjöri til formanns félagsins á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030.

Mjöll er núverandi formaður FG og hefur gegnt embættinu síðan haustið 2022.