Mjöll Matthíasdóttir er nýr formaður FG

Fréttir|7. maí 2022

Úrslit hafa verið kunngjörð í formannskjöri Félags grunnskólakennara.

Mjöll Matthíasdóttir, grunnskólakennari í Þingeyjarskóla, hefur verið kjörin formaður Félags grunnskólakennara fyrir kjörtímabilið 2022-2026.

Þrjú voru í framboði og féllu atkvæði þannig

  • Mjöll Matthíasdóttir hlaut 1.034 atkvæði, eða 41,53%
  • Pétur V. Georgsson hlaut 593 atkvæði, eða 23,82%
  • Þorgerður Laufey Diðriksdóttir hlaut 738 atkvæði eða 29,64%
  • Auðir seðlar voru 125 eða 5,02%
  • Á kjörskrá voru 5.392 og greiddu 2.490 atkvæði eða 46,18%

Atkvæðagreiðslan var rafræn, hófst klukkan 12 mánudaginn 2. maí og lauk klukkan 14 í dag, laugardagnn 7. maí.

Formannsskipti fara fram á aðalfundi Félags grunnskólakennara sem fram fer í haust. Þá lætur núverandi formaður, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, af embætti og Mjöll Matthíasdóttir tekur við.