Mjöll hefur tekið við embætti formanns FG

Fréttir|18. október 2022

Mjöll Matthíasdóttir tók formlega við embætti formanns Félags grunnskólakennara í dag. Formleg stjórnarskipti urðu á aðalfundi félagsins sem fram fór í Keflavík.

Ný stjórn Félags grunnskólakennara (FG) tók formlega við á aðalfundi félagsins sem fór fram í Keflavík, í gær og í dag. Mjöll Matthíasdóttir hefur tekið við formennsku og með henni í stjórn eru Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Geirlaug Ottósdóttir, Íris Árný Magnúsdóttir, Kolbrún Guðmundsdóttir, Sigurður Freyr Sigurðarson og Örlygur Þór Helgason.

Varamenn í stjórn eru Eva Káradóttir, Hreiðar Oddsson, Jens Guðjón Einarsson, Kristín Björnsdóttir og Lilja Margrét Möller.

Fráfarandi formaður FG er Þorgerður Laufey Diðriksdóttir. Kosið var til formanns og stjórnar í maí síðastliðnum. Kjörtímabilið er til ársins 2026.