Mjög góð þátttaka í smásagnasamkeppninni
Hátt í tvö hundruð smásögur bárust í Smásagnakeppni KÍ og Heimils og skóla en frestur til að skila handriti rann út á miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Þátttakan nú er ívið betri en í fyrra en þá var keppnin haldin í fyrsta sinn. Tæplega tvö hundruð smásögur voru sendar í keppnina.
Blásið er til smásagnasamkeppninnar í tilefni Alþjóðadags kennara sem haldinn er hátíðlegur hérlendis sem erlendis 5. október ár hvert. Börn og ungmenni á öllum skólastigum taka þátt í keppninni og verða verðlaun veitt í fimm flokkum. Öflugasti hópurinn sem tekur þátt að þessu sinni eru nemendur í 5. til 7. bekk grunnskólans.
Dómnefnd hefur tekið til starfa en hún er skipuð Kristínu Ómarsdóttur skáldi, Bryndísi Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SAMFOKS, og Kristjáni Jóhanni Jónssyni, dósent á Menntavísindasviði HÍ. Úrslit verða kynnt að morgni Alþjóðadagsins og sama dag verður verðlaunahöfum boðið í Kennarahúsið til að taka á móti verðlaunum.
Verðlaunasögurnar verða birtar í Skólavörðunni sem kemur út í næsta mánuði.