Mikilvægur vetur í kjaramálum fram undan

Þing Kennarasambandsins var sett í dag. Þetta er áttunda þing sambandsins frá stofnun þess um síðustu aldamót. Ráðherra menntamála, formaður BSRB, forseti ETUCE og framkvæmdastjóri NLS ávörpuðu þingfulltrúa í dag. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sagði laun og starfskjör stéttarinnar langt frá því að vera á ásættanlegum stað.
Við munum rýna í kjaralega stöðu okkar á þingi en við vitum öll sem hér erum inni að fram undan er mikilvægasti vetur lengi í kjaramálunum. Mikilvægt að viðsemjendur okkar komi að borðinu tilbúnir til alvöru viðræðna um að taka á okkar sérstöðu. Það er svo sannarlega þannig að í umræðu dagsins hljómar kunnuglegt stef um að ekki sé hagstætt veður til kjarasamninga á markaði en það er einfaldlega þannig í tilviki íslenskra kennara að núna er í alvörunni næst,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, þegar hann setti þing KÍ á Grand Hótel Reykjavík fyrr í dag.
Áttunda þing Kennarasambands Íslands er sem sagt hafið og mun standa fram á föstudag. Um 230 félagsmenn KÍ sitja þingið og taka ákvarðanir um hvert skuli stefna í öllum málaflokkum næstu fjögur árin. Þingið hefur æðsta vald í málefnum Kennarasambandsins. Ellefu málefnanefndir munu starfa á þinginu en ljóst má vera að kjaramál verða mikið rædd enda kjarasamningavetur fram undan eins og formaður nefndi í ræðu sinni.
Við upphaf þings var samþykkt samhljóða að Kristján L. Möller, fyrrum ráðherra og þingmaður, og Rakel Þorbergsdóttir, fyrrum fréttastjóri, yrðu þingforsetar. Varaforsetar voru kjörin þau Kristín Stefánsdóttir og Jón Ingi Gíslason.

Hæfileikakrakkar í hljómsveitinni Espólín keyrðu upp stemninguna við upphaf þings. Frábært tónlistarfólk.
Ávörp og frábær tónlist
Ásmundur Einar Daðason, barna- og menntamálaráðherra flutti ræðu og sagði það heiður að fá að ávarpa kennaraþing. Kennarar gegna, að mati ráðherrans, lykilhlutverki þegar kemur að því að móta skólaþjónustu til framtíðar. Hvatti ráðherra kennara til að taka þátt í starfi samráðshópa sem settir verða á laggirnar á næstu vikum. Undir lok ræðu sinnar þakkaði Ásmundur Einar kennurum og skólafólki fyrir einstaka aðlögunarhæfni á tímum veirufaraldurs og sagði stéttina hafa unnið mikið þrekvirki við að halda úti skólastarfi á erfiðum tímum og tryggja þar með farsæld nemenda.
Þá fluttu ávörp Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Larry Flanagan, forseti Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) og Christer Holm, framkvæmdastjóri Norrænu kennarastamtakanna (NLS).
Lúðrasveit verkalýðsins lék fyrir gesti við upphaf þings og einnig hljómsveitin Espólin, frá Miðstöðinni; sameiginlegri popptónlistardeild Tónlistarskólans í Grafarvogi, Nýja tónlistarskólans og Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Báðar sveitir voru frábærar og var fagnað mjög af þingfulltrúum.

„Ég treysti því að fulltrúar viðsemjenda komi einnig til leiks lausnamiðaðir og með að markmiði að stíga sanngjörn skref fyrir kennarastétt sem hefur nýlega sannað sig enn frekar sem framlínustétt íslensks samfélags," sagði Magnús Þór Jónsson.
Árið 2023 er næst
Formaður KÍ ræddi, sem fyrr segir, um kjaramál og kjarabaráttu í ræðu sinni. Hann sagði laun og starfskjör kennarastéttarinnar langt frá því að vera ásættanlegum stað, hvort sem horft væri til vinnu um jöfnun launa kynjanna eða jöfnun launa milli markaða.
„Það er samfélaginu til vansa að við búum við þann launamun sem er hjá íslenskum kennurum miðað við sambærilegar stéttir og við því verður samfélagið að bregðast. Umræðan um kynjaða launabaráttu er sem betur fer uppi og það er líka kominn tími á að slátra mýtunni um réttlætanleika þess að kvennastéttir séu lægra launaðar,“ sagði Magnús Þór og bætti við að aðildarfélög væru tilbúin að koma til komandi kjaraviðræðna með samstarfsvilja.
Hann sagði tíma kominn til að leiðrétta laun kvenna og boltinn væri hjá stjórnmálamönnum. Standa verði við gefin loforð um launaleiðréttingu.
„Ég treysti því að fulltrúar viðsemjenda komi einnig til leiks lausnamiðaðir og með að markmiði að stíga sanngjörn skref fyrir kennarastétt sem hefur nýlega sannað sig enn frekar sem framlínustétt íslensks samfélags. Mín kæru. Árið 2023 er næst. Við munum ekki slá því á frest,“ sagði Magnús Þór.

Glæsilegur hópur fyrrum forystumanna KÍ. Elna Katrín Jónsdóttir og Anna María Gunnarsdóttir, fyrrum varaformenn. Eiríkur Jónsson, Þórður Árni Hjaltested og Ragnar Þór Pétursson, fyrrum formenn KÍ.
Betur borgið saman
Magnús Þór kom víða við í setningarræðu sinni. Hann sagðist skynja að rödd kennara væri mikils metin meðal stjórnvalda, hvort sem horft væri til sveitarstjórnarstigsins eða ríkisvaldsins.
„Það verður þó auðvitað að viðurkennast að hér er enn bara átt við að eyru stjórnmálanna hafa verið á okkar fundum og málbeinin úr þeirri áttinni oft talað í takt við okkar eyru. Auðvitað eru verkin enn eftir en orð eru til alls fyrst og mikilvægt að samtal sé grunnur ákvarðana. Það er einfaldlega þannig að árangur í íslensku skólakerfi mun haldast í hendur við það að fulltrúar kennara verði ávallt í lykilhlutverki allra ákvarðana sem að því snúa,“ sagði Magnús Þór í ræðu sinni.
Yfirskrift þingsins er Saman erum við Kennarasambandið. Ein heild, ein stétt, ein samtök. Magnús Þór vék að tilurð þess að Kennarasambandið var stofnað um aldamótin með að markmiði að verða sameiginlegur vettvangur allra kennara. Hann sagðist sannfærður um að „okkur kennurum sé betur borgið saman í sterku sambandi með þá marktæku rödd sem felst í að vera vettvangur alls skólakerfisins“.
Undir lok ræðu sinnar þakkaði Magnús Þór það traust sem honum hefur verið sýnt með því að fá að leiða Kennarasambandið næstu fjögur árin.
„Þegar við stöndum upp að þingi loknu skulum við skila til félagsmanna okkar enn sterkara og samhentara Kennarasambandi Íslands sem gefur þau skilaboð að við séum lykilhaghafar íslenska skólakerfisins sem ætlum að verða enn sterkari en áður,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Sófaspjall í beinni
Anna Steinsen frá KVAN flytur erindi og síðan verður pallborð með Magnúsi Þór Jónssyni, formanni KÍ og Elnu Katrínu Jónsdóttur, fyrrverandi formann FF og fyrrverrandi varaformann KÍ. Sófaspjallið verður sent út á netinu að morgni miðvikudagsins 2. nóvember – þannig að félagsmenn geti notið.
Að loknu pallborði hefjast nefndarstörf á þinginu og er áformað að þau standi fram eftir öllum degi. Hægt er að kynna sér efni þingsins hér.