Mikilvægt að vinna með sorgina í skólunum

Fréttir|2. september 2022
Pistill

„Stöðugt fleiri skólar á öllum skólastigum hafa leitað eftir aðstoð Sorgarmiðstöðvarinnar þegar sorgin hefur knúið dyra“, skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins eftir heimsókn frá Sorgarmiðstöðinni.

Magnús Þór skrifar:

„Í dag fékk formaður KÍ góða heimsókn þegar þær Ína Ólöf Sigurðardóttir og Karen Björk Guðjónsdóttir frá Sorgarmiðstöðinni komu í Borgartúnið til að kynna starf sitt með börnum og unglingum í sorg.

Sorgarmiðstöð hefur á undanförnum árum stutt við bak fjölskyldna sem búa við sorgaraðstæður og stöðugt fleiri skólar á öllum skólastigum hafa leitað eftir aðstoð þeirra þegar sorgin hefur knúið dyra, auk þess þar sem fulltrúar miðstöðvarinnar hafa komið að endurmenntunarnámskeiðum svæðafélaga og með kynningar til einstakra skóla.

Þær Ína og Karen fóru yfir meginþætti starfs miðstöðvarinnar og mikilvægi þess að unnið sé með sorgina í skólum landsins, börnum og starfsfólki til heilla.

Við þökkum þeim stöllum fyrir komuna og munum án vafa fylgjast með starfi Sorgarmiðstöðvar á næstu misserum og árum.“