Mikilvægt að vera með bein í nefinu

Fréttir|17. apríl 2025

„Mér fannst mjög auðvelt að skipuleggja kennsluna, finna verkefni við hæfi og standa fyrir framan nemendur og tala,“ segir Elísabet Soffía Bender textílkennari við Hraunvallaskóla í Hafnarfirði, um sín fyrstu skref í starfi. Skólavarðan heimsótti líflega og fróðlega kennslustund hjá þessum færa nýja kennara sem einnig er formaður Rökvís.

Ég hef í rauninni alltaf verið í kringum kennarastarfið, allt frá því að ég var barn“, segir Elísabet. „Móðir mín starfaði sem leiðbeinandi í grunn- og framhaldsskólum fyrstu árin og síðan sem framhaldsskólakennari. Hún byrjaði að kenna þegar ég var einungis árs gömul.“

„Ég var fljót að tileinka mér það að leiðbeina sjálf, fyrst sem þjálfari í listskautum og tók þjálfaranámskeið. Ég ætlaði mér samt aldrei að verða kennari, en þegar ég lenti á krossgöt-um í janúar 2021, í miðju COVID, sat ég heima hjá ömmu minni yfir kaffibolla að vinna að meistararitgerðinni minni og velti fyrir mér framtíðinni. Þá spurði amma mín mig af hverju ég færi ekki bara í diplómanám til kennsluréttinda að námi loknu. Ég ráðfærði mig við mömmu, sem starfar nú sem háskólakennari, og í ágúst sama ár var ég sest aftur á skólabekk.“

„Það er því kannski COVID að þakka að ég er kennari í dag, því það var erfitt að komast í starf sem hönnuður á þessum tíma. Valið var því auðvelt. Ég er klæðskeri, með BA í fatahönnun og MA í stafrænni fatahönnun úr erlendum háskóla og því tók ég diplómanám í kennsluréttindum á framhaldsskólastigi.“

Leiðsagnarkennsla reyndist vel

„Kennaranámið mitt var stutt og mjög hnitmiðað þar sem ég kom inn í námið með mastersgráðu. Það er erfitt að koma inntaki námsins fyrir á einu ári en ég fékk mjög fjölbreytta og góða innsýn í fræðin og helstu kennsluaðferðir, þó fannst mér ég fá minni innsýn í hvernig best væri að miðla upplýsingum. Við vorum mikið í því að rýna í framhaldsskólakerfið og lesa Aðalnámskrá og ræða hvernig hægt væri að setja þær hugmyndir í framkvæmd,“ segir Elísabet.

Hún segir vettvangsnámið hafa verið gott og veitt henni góðan undirbúning. „Ég fékk tækifæri til að sitja fjölbreyttar kennslustundir og læra af mismunandi kennurum, sem mér fannst mjög góður undirbúningur. Ég fékk góðan leiðsagnarkennara sem gaf mér tækifæri til að þróa mín verkefni og fylgja þeim frá hugmynd til námsmats, sem ég er ekki alveg viss um að allir leiðsagnarkennarar geri með sínum nemendum.“

Amelía Mist Fransdóttir. Nemendur vinna verkefnin á sínum hraða og njóta aðstoðar í hvívetna.

Hins vegar hafi vantað í námið fræðslu og þjálfun í að taka á agavandamálum, tungumálaörðugleikum, námsmati, samskipta- og upplýsingatækni, og viðbrögðum við því sem kennari kann að mæta í samfélaginu í dag. Til dæmis þurfi kennari í dag að vera klókur á tölvur þar sem stór hluti starfsins fer í ýmiskonar skráningar og kennslan fer mikið fram í gegnum tæknina, eins og blaðamaður Skólavörðunnar varð var við í kennslustundinni.

„Þá þarf að kenna tungumálið, vera dómarinn í réttu og röngu, geta metið stöðu hvers og eins nemanda samkvæmt hæfniviðmiðum ásamt því að vernda sig og nemendur sína í allskonar aðstæðum. Í mínu tilfelli er það líklega ómögulegt verkefni að koma þessu öllu fyrir í diplómanámi á einu ári, en grunnskólakennarar taka kennaranámið almennt á fimm árum og því er alveg tækifæri til að koma þessum atriðum fyrir á þeim tíma,“ segir Elísabet.

Agamálin helsta áskorunin

Elísabet tók sín fyrstu skref sem textílkennari fyrir tveimur árum í Hraunvallaskóla, í ágúst 2023. „Mér fannst mjög auðvelt að skipuleggja kennsluna, finna verkefni við hæfi og standa fyrir framan nemendur og tala, en það sem mér fannst vera erfiðast voru agavandamálin og hegðun nemenda,“ segir Elísabet. „Ég kenni í opnu skólakerfi og stofan mín er opin, því er engin hurð að kennslusvæðinu. Fyrst um sinn var ég oft að missa nemendur fram á gang, fá nemendur upp á móti mér því þeim líkaði ekki við þær reglur sem ég setti.“

Það sem kom mér í rauninni mest á óvart var hegðun nemenda. Nemendur fundu á mér veikan blett og fóru að stríða mér. Það fór illa í mig og ég þurfti að finna leiðir til að aftengja mig tilfinningalega,“ bætir hún við.

 


Það var í mörg horn að líta við kennsluna enda nemendur að fást við einstaklingsbundnar áskoranir í ferlinu. Drengirnir heita Eiður Aron Ríkarðsson og Alex James Soon Pogorzelski.

 

„Ég er ekki viss um að það sé hægt að kenna tilvonandi kennurum hvernig á að vera ákveðinn, standa styrkum fótum og vera með bein í nefinu. Þetta er eitthvað sem lærist á vettvangi. En það er gott að eiga góða skólastjórnendur og samkennara að í svona málum.“

Stuðningur á fyrsta kennsluári ómetanlegur

Í Hraunvallaskóla var vel tekið á móti mér, segir Elísabet. „Ég fór á nokkur námskeið hjá Hafnarfjarðarbæ áður en kennsla hófst. Þar var meðal annars farið í gegnum áherslur og hlutverk bæjarins. Við tók innleiðsla í starfið í skólanum og ég fékk kennsluafslátt og stuðning frá leiklistarkennaranum sem fékk aukatíma greiddan vikulega til að sinna mér. Við funduðum vikulega og ræddum kennsluna og verkefni kennarans,“ útskýrir hún.

„Ég tel það mjög mikilvægt að stuðningurinn hafi komið úr listgreinateyminu. Mér fannst líka gott að vera í því teymi kennara. Við vinnum náið saman og þar sæki ég helst í stuðning og faglega ráðgjöf. Skólastjórnendur reyndust mér einnig vel þegar upp komu erfið nemendamál. Stjórnendur koma líka reglulega inn í kennsluna og veita mér endurgjöf á það sem ég er að gera. Ég held að það sé mikilvægt að ganga inn í svona gott og skipulegt stuðningskerfi,“ bætir hún við.

Leiðir félagsstarf nýrra kennara

Í október 2024 tók Elísabet Soffía við sem formaður nýstofnaðs félags nýliða í kennslu sem nú hefur fengið heitið Rökvís. Félagið, sem stofnað var samkvæmt ályktun 8. þings KÍ, er ætlað kennurum á sínum fyrstu árum í starfi og kennaranemum sem langt eru komnir í námi. Þá geta kennarar sem flytja sig milli skólastiga einnig fengið aðild að félaginu, en hægt er að kynna sér það betur á vef KÍ.

„Ég fékk tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og stofnun Rökvís í gegnum móður mína. Samstarfskona hennar hafði samband við mig og mér fannst ég knúin til að vera með og aðstoða við stofnun félagsins,“ útskýrir hún.

 


Stjórn Rökvís, nýstofnaðs fagfélags nýliða í kennslu á stofnunarfundi félagsins. Frá vinstri: Gunnar Ásgrímsson, Elísabet Soffía Bender, Kristín Helga Magnúsdóttir og Hrafnkell Hringur Helgason. Á myndina vantar Júlíönu Rose Júlíusdóttur.

 

„Rökvís – félag nýliða í kennslu hefur það hlutverk að styðja nýliða í kennarastarfinu. Nafnið kom til okkar út frá bréfi sem við fengum í nafnasamkeppni þar sem stóð: „Rökvís er að vera vitur eða greindur og á vel við kennara. Nýr kennari sem hefur störf eftir langa háskólagöngu er fullur af nýrri visku. Við erum rökvís.” Með þetta í huga er Rökvís vettvangur fyrir nýliða til að koma saman, miðla þekkingu og reynslu, ræða við jafningja, fá ráð og finna leiðir til að halda í nýja kennara og draga úr brotthvarfi.“

„Með tímanum mun Rökvís stækka og veita nýjum kennurum stuðning þvert á skólastig. Áður en lengra er haldið langar okkur að vita hvað brennur á nýliðunum og fá hugmyndir frá félagsfólki um áherslur og verkefni. Fyrsta verkefnið okkar verður því að hittast óformlega,“ segir Elísabet og það verður sannarlega gaman að fylgjast með starfinu í náinni framtíð.

Ég er ekki viss um að það sé hægt að kenna tilvonandi kennurum hvernig á að vera ákveðinn, standa styrkum fótum og vera með bein í nefinu. Þetta er eitthvað sem lærist á vettvangi.

Snúið að vera nýr kennari í kjarabaráttu

Elísabet Soffía er greinilega atkorkusöm og óhrædd við nýjar áskoranir, en hvernig var að vera skyndilega í öflugri kjarabaráttu og hrinu verkfalla fyrir nýjan kennara? „Ég hef nokkrum sinnum lent í því að vera nemandi í kjarabaráttu kennara, fyrst þegar ég var í 2. bekk og svo aftur í framhaldsskóla.“

„Tilfinningarnar sem ég upplifði núna sem nýr kennari voru margvíslegar og blendnar; áhyggjur af nemendum og fjárhagslegri óvissu, vonbrigði yfir því að þurfa að berjast fyrir réttindum sem ættu að vera sjálfsögð, og reiði yfir því hvernig kennarastéttin er oft vanmetin í samfélaginu,“ segir Elísabet.

„Rökræður um kjarabaráttu kennara voru áberandi í fjölmiðlum, þar sem sumir töldu að kennarar ættu að fá betri laun og vinnuaðstæður, á meðan aðrir bentu á langt sumarfrí og styttri vinnudaga. Þessi togstreita endurspeglar dýpri samfélagslegar spurningar um virðingu fyrir menntun og mikilvægi kennarastarfsins.“

Fyrir nýjan kennara er þetta ekki aðeins barátta fyrir betri kjörum, heldur einnig fyrir viðurkenningu og skilningi á því mikilvæga starfi sem þeir sinna daglega

„Fyrir nýjan kennara er þetta ekki aðeins barátta fyrir betri kjörum, heldur einnig fyrir viðurkenningu og skilningi á því mikilvæga starfi sem þeir sinna daglega. Mér fannst erfitt að vera nýr kennari og þurfa að réttlæta það sem við vorum að gera,“ útskýrir hún. „Launin mín detta mikið niður á sumrin og ég á erfitt með að ná endum saman; ég get ekki leyft mér að borða næringaríkan og góðan mat, sinna félagslífinu og fara í sumarfrí.“

„Af hverju eru störf okkar ekki eins metin og störf verkfræðinga og lögfræðinga sem eru langskólagengnir eins og við? Ég vona innilega að jafnvægi náist á þessu sviði og að ég þurfi ekki að ganga aftur í gegnum verkfallstímabil,“ segir Elísabet Soffía að lokum.