Mikilvægt að ungt fólk sé meðvitað um réttindi sín á vinnumarkaðnum

VR Skóli lífsins er netnámskeið fyrir ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði.
Þegar ungt fólk stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum er margt nýtt sem það þarf að læra. Gott er að vita hvað kjarasamningar eru, læra að lesa launaseðilinn sinn, þekkja hvað veikindaréttur er og vita í hvaða stéttarfélag á að greiða. VR sinnir upplýsingahlutverki sínu á vettvangi stéttarfélagsmála af heilum hug og hefur staðið fyrir kynningum á réttindum og skyldum fyrir útskriftarnemendur í grunn- og framhaldsskólum undanfarin 20 ár. Árið 2014 stofnaði VR svo VR-Skóla lífsins, sem er netnám fyrir fólk á aldrinum 16-24 ára um sama efni. Yfir 6.000 nemendur hafa farið í gegnum netnámið frá því það var stofnað.
Fræðsla sem þessi hefur mikið forvarnargildi og hefur gefið góða raun síðustu ár en svo virðist sem nokkuð sé um að kjarasamningar séu síður virtir í vinnusambandi atvinnurekenda við ungt fólk. Skólakynningarnar og VR-Skóli lífsins eru hluti af framlagi VR til þess að breyta þeirri menningu með því að upplýsa unga fólkið um helstu réttindi sín og skyldur á vinnumarkaðnum. Þá er mjög mikilvægt að ungt fólk sé meðvitað um hvaða hlutverki stéttarfélögin gegna og þá þjónustu sem félögin veita. Það skapar meiri meðvitund um hvert þau geta leitað ef þörf er á.
Skólakynningar
Eins og fyrr segir býður VR upp á skólakynningar fyrir útskriftarhópa í grunn- og framhaldsskólum. Haustið 2019 var ný skólakynning tekin í notkun en Jón Gnarr var fenginn til þess að endurgera myndbönd sem hann gerði fyrir VR fyrir um tólf árum og hafa verið vinsæl í kynningunum. Mikil ánægja hefur verið með kynningarnar og eru þær orðnar fastur liður í mörgum grunn- og framhaldsskólum. Á síðasta skólaári, 2019-2020, fór VR í 45 grunnskóla og 10 framhaldsskóla og hélt kynningar fyrir rúmlega 3000 nemendur á báðum skólastigum. Skólakynningarnar eru í boði á félagssvæðum VR en þau eru stórhöfuðborgarsvæðið, Akranes, Austurland, Suðurland og Suðurnes. Boðið er upp á kynningar allan veturinn á skrifstofutíma, kl. 08:00 - 16:00. Þær eru nú í boði rafrænt vegna aðstæðna en einnig hægt er að fá fyrirlesara frá VR með kynningu í skólana ef sóttvarnarreglur leyfa það á þeim tíma. Hver kynning tekur um 60 mínútur.
Forsvarsmenn skóla geta bókað kynningu með því að hringja í þjónustuver VR í síma 510 1700 eða sent tölvupóst á sandra@vr.is
VR Skóli lífsins
VR Skóli lífsins er netnámskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. „Hvernig fæ ég vinnu?“ „Hvað á ég að fá í laun?“ „Hvað er jafnaðarkaup?“ Þessum spurningum og ótal fleirum er svarað á mannamáli með líflegum myndböndum og stuttum verkefnum í lok hvers kafla. Nemendur fá einnig skírteini þegar þeir klára netnámið sem er frábær viðbót við ferilskrána. VR veitir skólunum aðgang að námsefninu þeim að kostnaðarlausu.
Netnámið hefur verið vinsælt í framhaldsskólum. Kennarar geta fengið aðgang fyrir sína nemendahópa með því að hafa samband við VR. Kennari fær einnig kennaraaðgang til að fylgjast með framvindu nemenda. Fyrir framhaldsskólahópa tekur námið tvær kennslustundir. Netnámið tekur um 60 mínútur og er hægt að fara í gegnum það í kennslustund eða í heimavinnu. Þá er verklegur tími með kennara ein kennslustund.
VR hvetur framhaldsskólakennara til að nýta sér þetta hagnýta netnámsefni við kennslu. VR Skóli lífsins er frábær viðbót við lífsleikni- eða fjármálafræðsluáfanga í framhaldsskólum. Til að nálgast námsefnið og fá nánari upplýsingar má senda póst á vrskolilifsins@vr.is eða hringja í síma 510 1700.
Þetta hafa framhaldsskólakennarar að segja um VR Skóla lífsins:
„Við teljum VR Skólann henta nemendum vel. Okkur finnst myndböndin skemmtileg viðbót við kennsluna og nemendum finnst þetta fróðlegt og skemmtilegt. Lifandi umræður skapast oft í verklega tímanum. Vinnan fyrir okkur kennarana er einföld og án erfiðleika. Það fylgja góðar leiðbeiningar og auðvelt að fá svör frá VR ef spurningar vakna.“
Viðskiptagreinakennarar í Verzlunarskóla Íslands
„Ég nota VR Skólann í kennslu því efnið nálgast nemendur og viðfangsefnið á skýran og skemmtilegan hátt. Nemendur muna vel eftir efninu og vitna oft í hann. Það er ekkert mál að leggja þetta fyrir, leiðbeiningar eru skýrar og þetta er ekkert flókið.“
Lífsleiknikennari við Kvennaskólann í Reykjavík
„Við notum VR Skóla lífsins vegna þess að hann höfðar til krakkanna, þeim finnst hann skemmtilegur og áhugaverður. Frábært að fá VR Skóla skírteinið til að setja með ferilskránni. Okkur finnst gott að geta fylgst með framvindu nemenda með kennaraaðganginum okkar og fáum alltaf snögg svör við fyrirspurnum okkar hjá VR.“
Lífsleiknikennarar við Fjölbrautarskólann í Ármúla