Mikilvægt að tryggja kynjafræðinni sess
Málþing kynjafræðinema úr sjö framhaldsskólum var vel sótt enda dagskráin afar áhugaverð. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson framhaldsskólakennari segir kynjafræðina afar mikilvæga námsgrein og nemendur hafi haft mikið gagn af því að hittast og ræða þennan mikilvæga málaflokk.
Þingið tókst vel í alla staði og gerður var góður rómur að öllum sem héldu erindi og töluðu við nemendur. Þátttakendur voru rétt um 250 kynjafræðinemar úr átta skólum,“ segir Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, framhaldsskólakennari. í Flensborgarskóla og einn skipuleggjenda málþings sem um 250 kynjafræðinemar úr átta framhaldsskólum sóttu 15. apríl síðastliðinn.
Dagskrá málþingsins, sem fór fram í MK, var afar fjölbreytt; Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Auður Magndís Auðardóttir, skólastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur, héldu ávörp og svo var boðið upp á ellefu málstofur þar sem fjallað var um ofbeldi gegn börnum, kynjafræði, konur í kvikmyndum, karla og kynferðisofbeldi, samþykki sem skilyrði, druslugöngur og margt fleira. Skipulag og undirbúningur málþingsins var í höndum kynjafræðikennara í Flensborgarskólanum, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, Kvennaskólanum og Menntaskólanum í Kópavogi.
Málstofa Maríu Lilju Þrastardóttur blaðamanns sem bar yfirskriftina „Druslugangan og slutshaming“ endaði á því að sett var af stað átak undir myllumerkinu #6dagsleikinn á Twitter þar sem varpað er ljósi á hversdaglegt misrétti. Umræður í málstofunni voru mjög frjóar og þátttakendur duglegir að benda á ýmis dæmi um hvernig misrétti kynjanna birtist á degi hverjum; hvernig talað er niður til kynjanna og ósmekkleg ummæli viðhöfð. María Lilja hvatti alla viðstadda til að tísta þegar í stað undir #6dagsleikinn og vakti framtakið fljótlega athygli fjölmiðla. Nú, viku síðar, er átakið enn á fullri ferð; tístin orðin nokkur hundruð og lifandi umræða um hvernig misrétti kynjanna birtist í óteljandi myndum.
Þurfum alltaf að gera betur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var fyrstur á mælendaskrá málþingsins. Utanríkisráðherra sagði jafnréttismál um langt skeið hafa verið eitt af áhersluatriðum í utanríkisstefnu Íslands og einnig í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Hann sagði Ísland tróna á toppi Jafnréttisvísitölunnar (Global Gender Index) en það fæli í sér mikla ábyrgð; við værum fyrirmynd annarra ríkja og afl til breytinga. „Við þurfum alltaf að hafa hugfast að þrátt fyrir tölfræðina eru þessi mál langt frá því að vera fullkomin hér á landi. Við megum ekki missa sjónar á að halda baráttunni áfram gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi, gegn launamun kynjanna, hrelliklámi, kynbundnu náms- og starfsvali og svo mætti áfram telja. Þó við stöndum okkur vel þá
þurfum við að gera enn betur,“ sagði Gunnar Bragi.
Hugarfarsbreyting skiptir mestu, að sögn ráðherrans, til að við getum stigið skrefið til fulls. „Þannig gegnir kynjafræðinám í framhaldsskólum ákaflega mikilvægu hlutverki og það er von mín að kynjafræði verði kennd sem víðast og á sem flestum skólastigum. Það sem þið eruð að gera hér í dag er ekki bara mjög mikilvægt, það er bráðnauðsynlegt og það er mikil uppörvun fyrir stjórnmálamann eins og mig að sjá hvað þið eruð að gera hér í dag,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra meðal annars í setningarávarpi sínu.
Jafnréttismál reddast ekki
Auður Magndís Auðardóttir, skólastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur, flutti ávarp undir lok málþingsins. Hún sagðist vonast til að það yrði sprengja úr öllum þeim nemendum sem eru að læra kynjafræði. „Íslendingar segja rosalega oft: „þetta reddast“. Það er líka ótrúlega margt sem reddast með bjartsýni og ótal margt sem gengur upp í lífinu. En svo er annað sem sem reddast ekki og jafnréttismál eru eitt af því,“ sagði Auður Magndís.
Hún hvatti nemendur til að kynna sér baráttusögu þeirra sem hafa verið beittir órétti; svo sem svartra kvenna, samkynhneigðra og fatlaðra svo dæmi séu tekin. Hún lagði áherslu á að ekki mætti sitja með hendur í skauti þegar jafnréttismál væru annars vegar. „Ef einstaklingurinn er virkur verður fjöldinn okkar styrkur, sungu Rauðsokkurnar um árið. Framtíðin býr í okkur og með smáblóði, svita og tárum getið þið breytt hlutunum,“ sagði
Auður Magndís og hvatti nemendurna til að finna sínar eigin leiðir til að vinna að jafnréttismálum, en margar leiðir eru færar í þeim efnum; greinaskrif, listsköpun, tónleikahald og dagleg samskipti í skóla eða á vinnustað í framtíðinni. „Hvar við verðum stödd eftir eitt ár, eftir tíu ár eða hundrað ár er í ykkar höndum,“ sagði Auður Magndís.
Kynjafræðin mótvægi við menningu staðalímynda
Kynjafræðin er vaxandi grein innan félagsvísinda og hún hefur verið í mótun í framhaldsskólunum undanfarin misseri. Það er líka löngu tímabært að hefja þessa grein til vegs og virðingar því jafnrétti er einn grunnþátta aðalnámskrárinnar og frá því árið 1976 hafa lög kveðið svo á um að skylt sé að veita nemendum jafnréttisfræðslu. Hrafnkell Tumi segir kynjafræðina nauðsynlegt mótvægi við þá menningu sem við búum við, sem er full af heftandi staðalímyndum. „Klámvæðing undanfarinna ára, stóraukin framleiðsla og aðgengi að klámefni er sérstakt áhyggjuefni,“ segir Hrafnkell.
Málþingið var kröftugt og vel heppnað að mati Hrafnkels Tuma. „Uppbrot í skólastarfinu er nauðsynlegt með reglulegu millibili. Nemendurnir græddu mikið á að skipta um umhverfi og hitta nemendur úr öðrum skólum sem einnig eru að læra kynjafræði, heyra þeirra spurningar og
athugasemdir jafnframt því að hlýða á spennandi erindi. Þetta var mjög valdeflandi fyrir nemendur ef svo má að orði komast.“
Kynjafræðin er kennslugrein sem er komin til að vera en Hrafnkell Tumi segir vanta kennslubók og annað gott kennsluefni. „Kennarar hafa verið duglegir að hafa samráð og miðla hugmyndum. Námskrárgerð stendur yfir og mikilvægt er að tryggja að kynjafræðin fái verðugan sess í öllum framhaldsskólum landsins," segir Hrafnkell Tumi Kolbeinsson.
Málstofurnar á þinginu voru fjölbreyttar og áhugaverðar
- Ofbeldi gegn börnum – Þorbjörg Sveinsdóttir
- Af hverju ertu svona hinsegin? – Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
- Samþykki er skilyrði – Sólveig Rós
- Botnleðja, drullumall og svo miklu meira – Haraldur Freyr Gíslason
- Glíman um vitneskjuna, ofbeldi heima – líðan unglinga í skóla - Guðrún Kristinsdóttir
- Karlar og kynferðisofbeldi – Hjálmar G. Sigmarsson
- Stelpur rokka! – Auður Viðarsdóttir og Áslaug Einarsdóttir (Áa)
- Kynjafræði og hvað svo? – Ásta Lovísa
- Er löggan bara fyrir karla? - Finnborg Salome Steinþórsdóttir
- Öll búum við í Norður Kóreu - Konur í kvikmyndum – Elísabet Ronaldsdóttir
- Druslugangan og slutshaming – María Lilja Þrastardóttir
Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu tímaritið hér.