Mikilvægt að tala af virðingu um skólann

„Það að vinna með ungu fólki og börnum og leiða þau áfram til þroska er ofsalega gefandi,“ segir Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, í útvarpsviðtali. Mikilvægt sé að tala af virðingu um skólann, styðja við börnin og sýna því áhuga sem þau eru að gera í sínu skólastarfi.
„Ég held að það skipti miklu máli að við fullorðna fólkið gætum okkar að tala af virðingu um skólana. Þetta eru vinnustaðir barnanna. Við viljum auðvitað að skólaganga barnanna sé farsæl og að þeim líði vel og þau nái að þroskast og eflast á sinni skólagöngu. Það skiptir ofsalega miklu máli að við stöndum um þetta vörð sem samfélag og tökum öll höndum saman. Samstarf kennara og foreldra í kringum skólagöngu barna er gríðarlega mikilvægt“, sagði Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara. Mjöll ræddi við Þórunni Elísabetu Bogadóttur á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag, í tilefni af því að nýtt skólaár er að ganga í garð.
- Hér er hægt að hlusta á viðtalið, sem byrjar á mínútu 52.
Breytt skólaumhverfi
Mjöll benti á umfangsmiklar breytingar á skólastarfi og -umhverfi á síðasta áratug, Hún segir að síðustu daga hafi kennarar um land allt verið að hittast, funda og undirbúa skólastarf vetrarins, sækja ráðstefnur og kynna sér nýtt námsefni, svo fátt eitt sé nefnt.
„Það er gríðarleg gerjun í gangi og fólk er spennt fyrir vetrinum,“ segir Mjöll. „Það er svo margt spennandi að gerast, kennarar og skólar út um allt land að þróa ótrúlega fjölbreytt verkefni, allt með það að markmiði að búa börnunum áhugavekjandi námsumhverfi og koma þeim áfram til þroska í hröðum heimi og nýrri tækni.“
Samsetning nemendahópa sé eitt af þeim atriðum sem hafi breyst mikið á fáum árum. Það kalli hugsanlega á aðrar aðferðir og aðra nálgun í kennslu. Þá geta nemendahóparnir verið fjölmennir og áskoranirnar mismunandi innan hvers hóps.

Við sem samfélag þurfum að taka höndum saman um að gæta að skólunum okkar. Þeir eru mikilvægir.
1 af hverjum 5 ekki kennari
Þáttastjórnandi vísaði í tölur frá Hagstofunni þar sem fram kemur að 47.500 börn sóttu grunnskóla hér á landi í fyrra. Þá tók hún fram að tæplega 19% þeirra sem störfuðu við kennslu í grunnskólum í fyrra voru ekki með kennaramenntun, eða um einn af hverjum fimm. Það hlutfall hafi ekki verið hærra síðan 2002.
Aðspurð um hvernig Mjöll telji að hlutfallið verði í ár segist hún óttast að hlutfallið verði ekki lægra í ár. Enn sé verið að auglýsa eftir kennurum og ekki sé búið að fullmanna kennslustöður nærri því alls staðar fyrir veturinn..
Þá sýni tölurnar einnig að það sé meiri starfsmannavelta meðal þeirra sem starfa við kennslu án kennaramenntunar. Kennarar séu þrefalt líklegri til að haldast í starfi en ófaglærðir.
Einnig séu kennarar líklegri til að helga sig starfinu,gera kennslu að ævistarfi og þannig tryggja börnunum þann stöðugleika og samfellu sem þau þurfa. „Við viljum að skólinn sé ákveðið skjól þar sem ríki stöðugleiki og að það séu ekki stöðug kennaraskipti."
Kennarastarfið ótrúlega skemmtilegt
„Maður veltir því stundum fyrir sér hvað hefur haldið manni í starfi öll þessi ár.“, segir Mjöll. „Það að vinna með ungu fólki og börnum og leiða þau áfram til þroska er ofsalega gefandi. Það að fá að fylgjast með börnum ná sínum litlu og stóru skrefum og sigrum og sjá blikið í augunum þegar þau allt í einu uppgötva að nú skilja þau eitthvað sem þau skildu ekki í gær. Það eru þessi augnablik sem gefa manni alveg óskaplega mikið.“
„Við sem samfélag þurfum að taka höndum saman um að gæta að skólunum okkar. Þeir eru mikilvægir. Menntun skiptir máli fyrir börnin okkar, fyrir samfélagið og fyrir framtíðina. Börnin þurfa gott utanumhald til þess að þau geti tekið við þessu samfélagi þegar þar að kemur. Þannig að við megum ekkert gefa eftir“, segir Mjöll.

Það að fá að fylgjast með börnum ná sínum litlu og stóru skrefum og sigrum og sjá blikið í augunum þegar þau allt í einu uppgötva að nú skilja þau eitthvað sem þau skildu ekki í gær. Það eru þessi augnablik sem gefa manni alveg óskaplega mikið.